17 ára hælisleitandi í lífshættu eftir hatursglæp Anton Egilsson skrifar 1. apríl 2017 16:31 Árásin átti sér stað í Croydon hverfinu í suðaustur London. Vísir/AFP
Sautján ára hælisleitandi barðist fyrir lífi sínu eftir að hópur manna gekk í skrokk á honum í London í gær. Telur lögregla að um hatursglæp hafi verið að ræða. Að sögn Guardian var drengurinn staddur ásamt tveimur vinum sínum á strætóstoppistöð í Croydon hverfinu í suðaustur London þegar átta ungir menn nálguðust hann og gáfu sig á tal við hann. Spurðu þeir drenginn hvaðan hann kæmi og þegar hann tjáði þeim að hann væri hælisleitandi létu þeir höggin dynja á honum og skildu hann svo eftir í blóði sínu. Voru afleiðingar árásarinnar svo slæmar að drengurinn var um tíma talinn í lífshættu. Breska rannsóknarlögreglan Scotland Yard segir að drengurinn hafi hlotið alvarlega höfuðáverka af völdum árásarinnar og var ástand hans talið tvísýnt um tíma. Er ástand hans nú talið alvarlegt en stöðugt. Vinir hans tveir sluppu báðir með minniháttar meiðsl. Lögregla hefur enn ekki haft hendur í hári árásarmannanna en hún leitar nú eftir sjónarvottum að árásinni.
Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Fleiri fréttir Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar Sjá meira