Körfubolti

Hamarsmenn jöfnuðu metin eftir mikinn spennuleik í Hveragerði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Christopher Woods var flottur í liði Hamars í kvöld.
Christopher Woods var flottur í liði Hamars í kvöld. Vísir/Ernir
Hamar vann tveggja stiga sigur á Val í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta í Hveragerði í kvöld, 93-91, og jafnaði þar með metin í 1-1 í einvígi liðanna um laust sæti í Domino´s deild karla í körfubolta á næsta tímabili.

Valsmenn burstuðu fyrsta leikinn í Valshöllinni en leikurinn í kvöld var allt annars eðlis og jafn frá nánast fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Hamarsmenn voru sterkari á lokasprettinum og unnu sinn þriðja heimaleik í röð í úrslitakeppninni en allir leikirnir hafa verið hnífjafnir og æsispennandi.

Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki tryggir sér farseðilinn í Domino´s deildina en næsti leikur er á Hlíðarenda á miðvikudagskvöldið kemur.

Valsmenn voru fjórum stigum yfir, 86-82, þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir en þá komu níu stig frá Hamar í röð og þau lögðu grunninn að sigrinum. Hamar komst í 91-86 og kláraði síðan leikinn á vítalínunni.

Christopher Woods var flottur í liði Hamars með 36 stig og 14 fráköst en hann fékk líka ómetanlega hjálp frá þeim Erni Sigurðarsyni (21 stig og 10 fráköst) og Hilmari Péturssyni (19 stig) sem báðir áttu mjög góðan leik.

Austin Magnus Bracey var atkvæðamestur Valsmanna með 27 stig og Urald King var með 20 stig og 11 fráköst.

Urald King, Bandaríkjamaðurinn í liði Vals, fékk sína fimmtu villu þegar fimm mínútur voru eftir. King fékk þá tæknivillu fyrir að mótmæla dómi og þurfti að sitja bekknum það sem eftir lifði leiks.



Hamar-Valur 93-91 (17-14, 20-23, 30-31, 26-23)

Hamar : Christopher Woods 36/14 fráköst/4 varin skot, Örn Sigurðarson 21/10 fráköst, Hilmar Pétursson 19/7 fráköst, Erlendur Ágúst Stefánsson 9/5 fráköst, Oddur Ólafsson 5/5 stoðsendingar, Rúnar Ingi Erlingsson 3/5 fráköst/8 stoðsendingar.

Valur: Austin Magnus Bracey 27, Urald King 20/11 fráköst, Sigurður Dagur Sturluson 14, Oddur Birnir Pétursson 11, Birgir Björn Pétursson 8/6 fráköst, Þorgeir Kristinn Blöndal 4/4 fráköst, Illugi Auðunsson 4/4 fráköst, Benedikt Blöndal 3/4 fráköst/5 stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×