Lögreglumaðurinn játar sök að hluta Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 4. apríl 2017 10:00 Frá þingfestingu málsins í morgun. Vísir/Ernir
Sigurður Árni Reynisson, lögreglumaðurinn sem ákærður er fyrir brot í starfi og líkamsárás gegn fanga, játaði sök að hluta við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann neitaði þó að hafa skellt höfði brotaþola tvisvar í gólf og neitaði að áverkar mannsins sem tilgreindir voru í ákæru væru af hans völdum. Hann sagðist hafa sett fangann í gólfið en ekki hafi verið ásetningur að skella höfði hanns í gólfið. Hann viðurkenndi jafnframt bótaskyldu í málinu en mótmælti fjárhæðinni sem farið er fram á, sem eru tvær milljónir króna. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa farið offari þegar hann hugðist flytja fanga úr fangageymslu og fyrir dómara í maí á síðasta ári. Hann er sakaður um að hafa beitt fangann ofbeldi með þeim afleiðingum að hann hlaut áverka á hnakka, ökkla og rifbeini.Ógnaði fanganum Í ákærunni segir að lögreglumaðurinn, sem er á fimmtugsaldri, hafi handjárnað fangann fyrir framan búk, tekið um hálsmálið á peysu hans, ýtt honum upp að vegg og tekið hann niður í gólfið. Þá hafi hann sett hægra hné sitt á bringu fangans, haldið enn um peysu hans við hálsmál og skellt höfði hans tvisvar í gólfið. Jafnframt segir að lögreglumaðurinn hafi ógnað fanganum með því að halda krepptum hnefa sínum framan við andlit hans og því næst dregið hann, með því að halda í föt hans, út fangaganginn og að lyftu í fangageymslu. Fanginn hlaut af þessu blæðingu í og undir húð á hnakka, eymsli og væga bólgu yfir liðbandi í hægri ökkla og grunur var um riftbrot á einu rifi vinstra megin. Hann krefst tveggja milljóna króna úr hendi lögreglumannsins í skaðabætur.Lögreglan óskað eftir úttekt á vinnubrögðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir því við ríkislögreglustjóra að gerð verði óháð úttekt á vinnubrögðum innan embættisins í kjölfar máls Sigurðar Árna. Honum var vikið úr starfi í mars síðastliðnum, níu mánuðum eftir að atvikið á að hafa átt sér stað. Í tilkynningu frá lögreglu þann 30. mars síðastliðinn sagði að mistök hafi verið gerð í þeim efnum og að tryggja þurfi að mál sem þessi fái afgreiðslu strax. Hins vegar hafi ekki verið talin, í ljósi lagalegra fordæma, heimild til að víkja lögreglumanninum úr starfi þegar það kom til álita, meðal annars vegna þess hversu langt var liðið frá því að málið kom upp. Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri og Jón H.B. Snorrason, sem var starfandi lögreglustjóri í fjarveru Sigríðar á þeim tíma sem atvikið kom upp, segjast ekki hafa vitað af atvikinu fyrr en í janúar síðastliðnum, eða sjö mánuðum eftir að það var kært.
Tengdar fréttir Héraðssaksóknari leiðréttir aðstoðarlögreglustjóra Héraðssaksóknari fullyrðir að hafa upplýst Jón H.B Snorrason aðstoðarlögreglustjóra um að rannsókn stæði yfir á meintum brotum lögreglumanns í maí í fyrra. 30. mars 2017 11:18 Mistök að grípa ekki strax inn í og fara fram á óháða úttekt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir því við ríkislögreglustjóra að gerð verði óháð úttekt á vinnubrögðum innan embættisins. 30. mars 2017 14:29 Grímur gleymdi meintri árás lögreglumannsins Grímur Grímsson fór fyrir rannsókn á máli lögreglumannsins þegar hann starfaði hjá héraðssaksóknara. Hann starfaði sem yfirlögregluþjónn þar til í október en þá færði hann sig yfir til lögreglunnar og varð yfirmaður ákærða. 31. mars 2017 13:30 Lögreglumaðurinn sakaður um að hafa skellt höfði fangans í gólfið Sakaður um að hafa farið offari og ekki gætt lögmætra aðferða þegar hann hugðist flytja fanga úr fangageymslu. 27. mars 2017 11:42 Á kafi í rannsóknum á ofbeldisbrotum í níu mánuði eftir átökin á Hverfisgötu Lögreglumaðurinn sem ákærður hefur verið fyrir að hafa beitt fanga ofbeldi á síðasta ári var annar tveggja sem sáu að mestu um yfirheyrslur yfir manninum sem grunaður er um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur. 29. mars 2017 10:00 Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira
Héraðssaksóknari leiðréttir aðstoðarlögreglustjóra Héraðssaksóknari fullyrðir að hafa upplýst Jón H.B Snorrason aðstoðarlögreglustjóra um að rannsókn stæði yfir á meintum brotum lögreglumanns í maí í fyrra. 30. mars 2017 11:18
Mistök að grípa ekki strax inn í og fara fram á óháða úttekt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir því við ríkislögreglustjóra að gerð verði óháð úttekt á vinnubrögðum innan embættisins. 30. mars 2017 14:29
Grímur gleymdi meintri árás lögreglumannsins Grímur Grímsson fór fyrir rannsókn á máli lögreglumannsins þegar hann starfaði hjá héraðssaksóknara. Hann starfaði sem yfirlögregluþjónn þar til í október en þá færði hann sig yfir til lögreglunnar og varð yfirmaður ákærða. 31. mars 2017 13:30
Lögreglumaðurinn sakaður um að hafa skellt höfði fangans í gólfið Sakaður um að hafa farið offari og ekki gætt lögmætra aðferða þegar hann hugðist flytja fanga úr fangageymslu. 27. mars 2017 11:42
Á kafi í rannsóknum á ofbeldisbrotum í níu mánuði eftir átökin á Hverfisgötu Lögreglumaðurinn sem ákærður hefur verið fyrir að hafa beitt fanga ofbeldi á síðasta ári var annar tveggja sem sáu að mestu um yfirheyrslur yfir manninum sem grunaður er um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur. 29. mars 2017 10:00