Tíu ár í dag frá einni mikilvægustu körfu KR í körfuboltanum | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. apríl 2017 16:15 Brynjar Þór Björnsson fyrir tíu árum. Vísir/Vilhelm „
Brynjar, þristur, Brynjar, Brynjar, þristur,“ heyrist oft sungið af stuðningsmönnum KR og ekki af ástæðulausu. Brynjar Þór Björnsson, fyrirliði KR-liðsins í dag, hefur skorað ófáar þriggja stiga körfurnar í gegnum tíðina og fyrir nákvæmlega tíu árum síðan þá skoraði hann eina mikilvægustu körfuna í sögu körfuboltans í KR. 5. apríl 2007 tryggði Brynjar KR-liðinu nefnilega framlengingu í oddaleik á móti Snæfelli þegar liðin voru að spila um sæti í úrslitaeinvíginu um titilinn. Brynjar jafnaði metin í 68-68 og KR vann síðan 76-74 eftir framlengingu. Brynjar var þarna átján ára gamall en hann skoraði alls tíu stig og þrjá þrista í leiknum. Stigin og þriggja stiga körfurnar hans hafa síðan verið áberandi í sigurgöngu KR-liðsins í körfuboltanum. KR fór í úrslitaeinvígið 2007 þar sem liðið vann 3-1 sigur á Njarðvík. Þetta var fyrsti Íslandsmeistaratitill Brynjars með KR en nú tíu árum síðar eru þeir orðnir sex. Brynjar fær ennfremur gott tækifæri til að bæta sjöunda Íslandsmeistaratitlinum við í úrslitakeppninni í ár og hann er ekki enn búinn að halda upp á 29 ára afmælisdaginn sem rennur ekki upp fyrr en í sumar. Það er rétt hægt að ímynda sér hvað hefði gerst fyrir KR-liðið hefði það misst af Íslandsmeistaratitlinum 2007. Það má því líta á þessa þriggja stiga körfu sem upphafi af ótrúlegri sigurgöngu KR-liðsins. Það eru margir aðrir leikmenn og margar aðrar stórar körfur sem eiga líka sinn sess á þessum ótrúlegu og sigursælu árum í Vesturbænum. Karfan hans Brynjars gleymist samt seint aldrei og það er svolítið skrýtið að það séu liðinu tíu ár frá þessu eftirminnilega skírdagskvöldi í DHL-höllinni.Þriðji leikur KR og Keflavíkur í undanúrslitum Domino´s deildar karla verður á föstudaginn og að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Staðan er 1-1 eftir sigur Keflvíkinga í síðasta leik.
Dominos-deild karla Mest lesið Argentína - Sviss | Hverjir fá síðasta farseðilinn? Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Sjá meira