Lífið

Fílar ræktun fjár og lands

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Formaðurinn þarf að fylgjast með því að kúrsinn sé réttur, miðað við stefnumál samtakanna,“ segir Oddný Steina.
"Formaðurinn þarf að fylgjast með því að kúrsinn sé réttur, miðað við stefnumál samtakanna,“ segir Oddný Steina.
Oddný Steina er nýbúin að gefa morgungjöfina í fjárhúsunum þegar ég slæ á þráðinn til hennar. Hún var kjörin formaður í samtökum fjárbænda um síðustu helgi, fyrst kvenna.

Er sjálf með 500 fjár á fóðrum, ásamt með manni sínum Ágústi Jenssyni. Engin lömb eru komin enn þetta vorið en það styttist óðum í þau því 40 ær eiga að bera um og upp úr miðjum þessum mánuði.

„Við ákváðum að prófa það í fyrsta skipti að láta nokkrar bera svona snemma, til að létta á aðalsauðburðinum sem fer svo í gang um mánaðamótin, eins og venjulegt er,“ upplýsir hún og er vongóð um að vel vori þetta árið.

Oddný Steina er frá Úthlíð í Skaftártungu en Ágúst frá Teigi í Fljótshlíð. Þau eiga þrjú börn, tíu, sjö og sex ára. Hjónin tóku jörðina á Butru á leigu árið 2004 og hafa stækkað túnin og endurunnið önnur.

Spurð um skemmtilegustu verkin í búskapnum svarar hún: „Öll ræktun yfirleitt bæði á landi og fé og allt sem snýr að henni. Vorið er uppáhaldstími og haustið reyndar líka þegar uppskeran er.“

Oddný Steina kveðst meðvituð um að formennskunni fylgi vinna.

„Formaður þarf að fylgja eftir stefnunni eins og við bændur viljum sjá hana. Við teljum til dæmis mikilvægt fyrir okkar famleiðslu að neytendur fái réttar og góðar upplýsingar á umbúðum. Þar þurfa bæði afurðastöðvar og verslanirnar að vera með okkur í liði.“

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 8. apríl 2017






Fleiri fréttir

Sjá meira


×