Forsætisráðherra Kína varar við efnahagslegum og pólitískum umbrotum á heimsvísu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 5. mars 2017 13:19 Forsætisráðherrann hélt stefnuræðu sína á þingi kínverska ríkisins í gær. Vísir/afp
Li Keqiang, forsætisráðherra Kína, segir að líkur séu á töluverðum efnahagslegum og pólitískum umbrotum í heiminum á næstu árum. Hann virðist hafa að miklu leyti beint orðum sínum að Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Guardian greinir frá.Forsætisráðherrann hélt stefnuræðu sína á þingi kínverska ríkisins í gær. Þar sagði hann að Kína yrði að vera undir það búið að takast á við „flókna og alvarlegaa stöðu“ í heimsmálum. „Það ríkir mikil óvissa um hvaða stefnu stærstu hagkerfi heims muni taka og hvaða áhrif það muni hafa. Þeir þættir sem skapa óvissu og óstöðugleika fara vaxandi,“ sagði Keqiang sem verið hefur forsætisráðherra frá árinu 2013. Líklegt er talið að Keqian hafi beint orðum sínum að Donald Trump sem kallað hefur Kína óvin Bandaríkjanna. Hefur hann hótað því að taka mun harðari afstöðu gagnvart viðskiptum við Kína en forverar sínir. Óttast er að þessi afstaða geti þróast yfir í milliríkjadeilu á milli þessara tveggja ríkja, stærstu hagkerfa heimsins. Forsætisráðherra Kína lagði áherslu á að Kína myndi standa gegn einangrunarhyggju í alþjóðamálum og leggja áherslu á aukin samskipti og hnattvæðingu. Rímar þetta illa við áherslur Trump sem vill að Bandaríkin verði sjálfstæðari en áður í efnahagsmálum.
Donald Trump Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira