„Þegar ég heyrði að ég hafði verið tilnefndur til Edduverðlauna þá hugsaði ég með mér að það væri alveg geggjað að fá tilnefningu. Svo var Baldur líka tilnefndur , sem gerir þetta enn þá betra,“ segir Blær sem hlaut Edduverðlaun fyrir hlutverk sitt í Hjartasteini, en mótleikari hans í myndinni, Baldur Einarsson, var líka tilnefndur. „Áður en hátíðin hófst þá var mér nánast sama hver myndi vinna, ég vonaði auðvitað að það yrði ég eða Baldur, en mér fannst það samt ekki skipta máli,“ segir Blær, sem var himinlifandi með tilnefninguna. Hann segir verðlaunin sjálf hafa verið algjöran bónus. „Þessi verðlaun komu mér svolítið á óvart vegna þess að ég er svo ungur, ég er bara 15 ára.“
En þrátt fyrir ungan aldur hefur Blær lent í ýmsu, hann var til að mynda nærri drukknaður í sundlaug sem barn og svo lenti hann fyrir bíl þegar hann var nýstiginn úr strætisvagni. Þetta er reynsla sem hjálpaði honum að kalla fram tilfinningar í hlutverki sínu í Hjartasteini. „Þegar maður var að fara í erfiðar senur þá gat maður hugsað til baka til þess sem maður hefur í reynslubankanum. Ég hugsaði líka mikið til baka til afa míns sem er dáinn. Ég sakna hans, hann var svo skemmtilegur og góður maður. Ég og bróðir minn vorum bestu vinir hans. Þannig að þegar ég var að fara í erfiðar senur þá hugsaði ég um hann og skoðaði myndir af honum,“ útskýrir Blær sem kallaði fram tár með því að minnast afa síns.

Ekkert mál að fá frí frá skóla
Þegar Blær er svo spurður út í framtíðarplön segir hann tímann verða að leiða það í ljós. „Mig langar auðvitað mikið í leiklist en svo er ég líka á fullu í handbolta,“ segir Blær sem tók sér tveggja mánaða frí frá handboltanum og skólanum á meðan á tökunum stóð. Eins hefur hann þurft að taka sér frí frá námi og tómstundum til að ferðast til útlanda á kvikmyndahátíðir til að kynna myndina.
En var ekkert vandamál að taka frí frá skóla? „Nei, kennararnir eru svo góðir og skilja að þetta er ævintýri fyrir mig. Þeir skilja að það er lærdómsríkt að ferðast og kynnast nýjum menningarheimum. En ég vinn auðvitað öll skólaverkefni og læri það sem samnemendur mínir eru að gera. Ég þarf bara stundum að vinna það upp eftir á en ég fæ hjálp frá kennurum,“ segir Blær.
Blær er ekkert að stressa sig á framtíðinni. „Vonandi fær maður svo bara einhver fleiri tilboð í leiklistinni. Þetta kemur allt í ljós, ég er bara í 10. bekk þannig að ég hef nægan tíma eins og er til að taka ákvörðun um hvort ég vilji einbeita mér sérstaklega að handboltanum, leiklistinni eða einhverju öðru.“