Dómsmálaráðherra um loftlagsmál: Stjórnmálamenn eiga að gera minna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. febrúar 2017 21:30 Sigríður Á. Andersen. Vísir
Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, segir að stjórnmálamenn eigi að fara hægt í sakirnar þegar kemur að aðgerðum í loftlagsmálum þar sem aðgerðir geta oft gert minna gagn en aðgerðarleysi. Hún segir reglugerðir og skatta sem beinast gegn einkabílnum óhentuga leið í baráttunni við hlýnun jarðar. Þetta kemur fram í grein hennar í veftímariti alþjóðasamtaka Íhaldsmanna og umbótasinna.Í grein sinni bendir Sigríður á að bílakaup séu ásamt húsnæðiskaupum ein af stærstu fjárfestingum nútíma heimilis. Þrátt fyrir að allir vilji eignast einn slíkan á einhverjum tímapunkti, leggi stjórnmálamenn samt allt kapp á að skattleggja notkun bíla, í viðleitni til að bregðast við vegna umhverfismála. Sigríður segir það skjóta skökku við þar sem fólk líti á bílaeign sem nauðsyn, en ekki munað. Stjórnmálamenn verði að sætta sig við að bílar munu halda áfram að verða hluti af lífum fólks. Hún varar við því að díselbílar verði skattlagðir með sama hætti og bensínbílar en hún færir rök fyrir því að framleiðendur hafi með reglusetningum og skattlagningu á bensínbíla verið hvattir til þess að framleiða betri og umhverfisvænni díselbíla. Í greininni veltir hún fyrir sér á hvaða stað bensínbílar væru komnir ef að reglugerðir og skattlagning ríkisvaldsins hefði ekki beinst gegn þeim. Þá segir hún að til þess að leysa vanda líkt og þann vanda sem hnattræn hlýnun er, verði fyrst að skilgreina vandamálið. Gagnrýnir hún að stöðugt sé litið til farartækja þegar reynt sé að skilgreina vandann og bendir hún á að landbúnaður og ræktun votlendis sé stærsti mengunarvaldurinn á Íslandi. Þrátt fyrir þetta einblíni stjórnmálamenn á að minnka útblástur einkabíla. Í niðurlagi greinarinnar segir Sigríður að stjórnmálamenn sem vilji raunverulega gera gagn í loftlagsmálum, eigi að byrja á að skilgreina vandann og taka allar breytur með í reikninginn. Stríð gegn bílaeigendum og hinum frjálsa markaði geri lítið gagn.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Sjá meira