Karlmaður kærður fyrir að ógna piltum með hnífi í Árbæ Birgir Olgeirsson skrifar 22. febrúar 2017 15:23 Maðurinn veittist að piltunum eftir að púðurkerlingu var kastað á eftir bíl hans. Vísir
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið kærður til lögreglu fyrir að ógna unglingspiltum við Fylkisheimilið í Árbæ um hálf átta leytið í gærkvöldi. Greint var fyrst frá málinu á DV en maðurinn var handtekinn á heimili sínu í gær og færður til yfirheyrslu á lögreglustöð þar sem hann gisti í nótt. Í frétt DV kemur fram að piltarnir hafi verið fjórir og allir fjórtán ára. Einn þeirra á að hafa hent kínverja, eða púðurkerlingu, á eftir bíl mannsins. Maðurinn á að hafa stöðvað bílinn í kjölfarið og veist að piltunum, meðal annars með því að henda einum þeirra í jörðina og taka annan hálstaki og hóta með hnífi. Valgarður Valgarðsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir forráðamenn piltanna hafa lagt fram kæru gegn manninum vegna málsins sem er nú komið til ákærusviðs lögreglunnar þar sem ákveðið verður hvort maðurinn verður ákærður eða ekki. Valgarður segir piltana hafa kennt sér meins eftir þetta atvik og hafi leitað á slysadeild Landspítalans. Maðurinn gaf sínar skýringar í yfirheyrslu við lögreglu en að sögn Valgarðs sagðist hann hafa verið með vinnuhníf á sér en ekki beitt honum. Maðurinn sagði hins vegar að piltarnir hefðu verið með hníf á sér og ásakanirnar þannig gengið á víxl segir Valgarður.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira