Nýjar leiðir kannaðar á uppgjöri sanngirnisbóta Jóhann Óli Eiðsson skrifar 9. febrúar 2017 06:00 Frá skemmtun á Kópavogshæli árið 1980. Vistheimilanefnd hefur skilað skýrslum um fimm vistheimili þar sem margt misjafnt kom í ljós. Í nýjustu skýrslunni eru talin upp 13 önnur heimili sem enn á eftir að skoða. Mynd/Ljósmyndasafn Reykjavikur
Í nýrri skýrslu Vistheimilanefndar um Kópavogshæli og Efra-Sel er eindregið mælst til þess að mótað verði nýtt fyrirkomulag um könnun og uppgjör sanngirnisbóta vegna illrar meðferðar og ofbeldis gagnvart börnum á stofnunum. Málið fer í ferli í ráðuneytinu að sögn dómsmálaráðherra.Hrefna Friðriksdóttir FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONVistheimilanefnd var fyrst skipuð árið 2007 og var nefndinni falið að skila skýrslu um starfsemi Breiðavíkurheimilisins. Í kjölfar þeirrar skýrslu skilaði nefndin þremur skýrslum um önnur vist- og meðferðarheimili fyrir börn. Árið 2012 var ný vistheimilanefnd skipuð og henni falið að kanna málefni Kópavogshælis. Var það gert að beiðni Þroskahjálpar. Í lögum um sanngirnisbætur er það skilyrði fyrir greiðslu bóta að skýrsla vistheimilanefndar liggi fyrir. Í skýrslunni sem skilað var í fyrradag eru talin upp þrettán önnur heimili og stofnanir þar sem börn voru vistuð en engin skýrsla liggur fyrir. „Spurningin sem liggur í loftinu er hvort niðurstaðan frá þeim heimilum sé ekki sú sama. Vitum við ekki hreinlega nóg til að geta dregið nokkuð almennar ályktanir?“ spyr Hrefna Friðriksdóttir, formaður vistheimilanefndar. Í niðurstöðukafla skýrslunnar er stungið upp á úrbótum til að gera fyrirkomulag við greiðslu sanngirnisbóta skilvirkari. Tillögurnar eru að stærstum hluta efnislega í samræmi við tillögur sem fyrri nefnd skilaði árið 2011. Þar var meðal annars stungið upp á að sýslumaður eða sjálfstæð stofnun sæi um verkefnið. „Einnig er hægt að halda núverandi fyrirkomulagi. Það er hægt að fela nefndinni að skoða fleiri heimili en það útheimtir mikla vinnu. Þetta er gríðarlegt magn gagna og tímafrek vinna,“ segir Hrefna. „Ég tel að það eigi að íhuga vel tillögur um breytt fyrirkomulag,“ segir Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra. Spurning sé hvort ástæða sé til að leggja vinnu nefndarinnar nú til grundvallar á öðrum heimilum eftir atvikum. Málið fari nú í ferli í ráðuneytinu. „Ég legg áherslu á að vandað sé til verka en það er ekki víst að það þjóni tilgangi að taka jafn langan tíma í þau mál sem á eftir koma,“ segir Sigríður.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira