Biður Þingvallagreninu vægðar Garðar Örn Úlfarsson skrifar 12. febrúar 2017 15:15 Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður segir að til að bæta til muna ásýnd þjóðgarðsins eigi að uppræta grenilund milli Valhallarlóðarinnar og minningarreitsins um Bjarna Benediktsson fyrrverandi forsætisráðherrra. Fréttablaðið/GVA „
Það hafa margir verið að furða sig á þessu,“ segir Aðalsteinn Sigurgeirsson, fagmálastjóri Skógræktarinnar, um fyrirhugaða eyðingu greniskógar á Þingvöllum. Fréttablaðið sagði frá því á mánudag að fella ætti grenitré sem standa umhverfis sumarbústað næst Valhallarreitnum á Þingvöllum. Ríkið hefur keypt bústaðinn og hyggst fjarlægja hann ásamt trjánum sem Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður segir Þingvallanefnd telja hafa „slæm sjónræn áhrif“. Opna eigi lóðina fyrir almenningi.Fréttablaðið/GVA„Það er í sjálfu sér ekkert skrítið að ríkið vilji kaupa upp sumarbústaðina og fjarlægja húsin en það er illskiljanlegt af hverju þarf endilega að höggva niður öll trén sem fólkið hefur gróðursett. Mér vitanlega eru þau ekki að valda neinu umhverfistjóni eða sálartjóni,“ segir Aðalsteinn Sigurgeirsson. „Það er prýði að þessum trjám, ekki síst vegna þess að þau er sígræn.“ Aðalsteinn gefur lítið fyrir þá skoðun að barrtré eigi ekki heima í þjóðgarðinum og séu þar eins og út úr kú. „Þetta er bara ein af þessum söguminjum um hvað þjóðin er búin að vera að gera í ellefu hundruð ár á Þingvöllum. Um og upp úr aldamótunum þá var gróðursettur furulundurinn á Þingvöllum sem enn þá stendur. Eftir seinna stríð voru gróðursettir skógar meðal annars við Valhöll, við Hrafnagjárhallinn og víðar.“ Aðalsteinn minnir á að þegar gömul og stór grenitré næst Hótel Valhöll voru höggvin árið 2007 hafi verið sagt að það væri krafa heimsminjaskrár menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) að allur erlendur gróður yrði fjarlægður af Þingvöllum.Skjólsælt rjóður umhverfis gamla bústaðinn hverfur þegar Þingvallanefnd heggur niður grenilundinn.Fréttablaðið/GVA„En þegar var farið að grennslast fyrir um málið kom í ljós að krafan kom ekkert frá UNESCO. Hún var bara sett inn í lýsingu Þingvallaþjóðgarðsnefndar á því sem hún ætlaði sér að gera ef Þingvellir kæmust inn á skrána. Síðan var látið í veðri vaka að krafan hefði komið að utan en ekki héðan innanlands. En þetta er algeng skoðun hjá þeim sem gefa sig út fyrir að unna íslenskri náttúruog meina þá umhverfi án allra útlendra plantna og trjáa,“ segir Aðalsteinn. Að sögn Aðalsteins er umræddur lundur griðastaður fyrir plöntur og dýr. „Skógurinn þarna, þó að hann sé greniskógur, er híbýli margra skógarfuglategunda og það eru ábyggilega margar tegundir platna og smádýra sem hafa gott af því að hafa skóginn í staðinn fyrir að hafa berangurinn á klöppinni sem var þarna fyrir,“ segir Aðalsteinn. Eitt af því sem helst vanti á Íslandi sé skjól. „Það mun nú ekki bæta skjólskilyrðin þarna beinlínis að höggva niður öll trén sem skýla þinghelginni.“ Fréttablaðið í gær, laugardaginn 11. febrúar.-
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira