Hörð gagnrýni á kerfisáætlun Landsnets Sveinn Arnarsson skrifar 20. janúar 2017 07:00 Uppbygging flutningskerfis raforku er mjög brýn og byggðalínan flytur ekki næga orku. Vísir/Stefán
Skipulagsstofnun hefur uppi harða gagnrýni á kerfisáætlun Landsnets sem fyrirtækið vinnur að þess dagana. Rökstuðningur varðandi kosti jarðstrengja er óskýr að mati stofnunarinnar og setur Skipulagsstofnun fyrirvara við niðurstöður kerfisáætlunar. Skipulagsstofnun segir að áhrif tillögunnar á náttúru landsins séu ekki fullnægjandi og að hugmyndir Landsnets um uppbyggingu falli ekki að áherslum sem koma fyrir í landsskipulagsstefnu á miðhálendinu sem samþykkt hefur verið á Alþingi. Í umsögn skipulagsstofnunar um jarðstrengjakosti Landsnets segist stofnunin gera þá kröfu að ítarlega verið fjallað um jarðstrengi á mun skilvirkari hátt en gert sé í kerfisáætlun Landsnets en Landsnet segir takmarkað hvað hægt sé að leggja langa jarðstrengi. „Hér er um grundvallaratriði að ræða varðandi ákvarðanir um framtíðaruppbyggingu og þróun raforkuflutningskerfisins. Því telur Skipulagsstofnun að gera verði kröfu um mun ítarlegri umfjöllun um þetta, þar sem færð eru frekari rök og skýrðar forsendur þessara takmarkana,“ segir í áliti skipulagsstofnunar. „Ekki hefur verið lagt fullnægjandi mat á áhrif tillögunnar á víðerni. Einnig er ljóst að svo stórt inngrip að fara með háspennulínu yfir Sprengisand fellur illa eða ekki að þeim megináherslum sem fram koma í landsskipulagsstefnu um skipulagsmál á miðhálendinu,“ segir ennfremur í áliti Skipulagsstofnunar. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar, tekur í sama streng. „Gagnrýni Skipulagsstofnunar á jarðstrengjahluta kerfisáætlunar er mjög í takt við þá gagnrýni sem við setjum fram og það vantar allar forsendur fyrir takmörkunum á uppgefnum hámarkslengdum jarðstrengja,“ segir Guðmundur Ingi.Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets.Frestur til að skila inn athugasemdum við kerfisáætlun Landsnets rann út þann 10. janúar. Alls bárust umsagnir frá 31 aðila. Innsendar athugasemdir eru hluti af samráðsferli við vinnslu kerfisáætlunar og eru mjög mikilvægur þáttur í þróun hennar,“ segir Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets, en hún vildi ekki bregðast við athugasemdum Skipulagsstofnunar. „Við þökkum öllum þeim sem tóku þátt í þessu samtali og erum nú að vinna úr innsendum athugasemdum,“ segir Steinunn.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Sjá meira