Lífið

Spila, syngja og teikna

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þórdís Emilía og Björney Anna með fiðlurnar sínar í Hannesarholti.
Þórdís Emilía og Björney Anna með fiðlurnar sínar í Hannesarholti. Mynd/Hlaðgerður Íris
Systurnar Þórdís Emilía og Björney Anna Aronsdætur voru í íslenskum búningum þegar þær spiluðu á fiðlurnar sínar í Hannesarholti síðasta sunnudag. Þar komu þær fram í upphafi söngstundar í byrjun þorra og vöktu aðdáun gesta. Þórdís Emilía er átta ára og Björney Anna sex.

Hvernig kom það til að þær byrjuðu að æfa á fiðlu?

Þórdís Emilía: Mamma spurði hvort okkur langaði að byrja og við sögðum bara strax já.

Björney Anna: Við fórum í Suzukiskólann og erum hjá Helgu Steinunni. Ég er búin að vera í þrjú ár.

Þórdís Emilía: Ég líka en við erum ekki í sama hópi.

Björney Anna: Við erum í hljómsveit í Suzukiskólanum.



Þórdís Emilía: Svo erum við í annarri hljómsveit í skólanum okkar, Barnaskóla Reykjavíkur.

Björney Anna: Ég er líka í Stúlknakór Reykjavíkur. Þórdís var þar en hætti.



Hvar fenguð þið þessa fallegu búninga sem þið eruð í?

Björney Anna: Amma Dísa saumaði þá.

Þórdís Emilía: Hún heitir Þórdís Gissurardóttir.

Hvernig finnst ykkur skemmtilegast að leika ykkur?



Björney Anna: Bara – fá vinkonur í heimsókn og fara með þeim út að leika. Þegar snjór er þá rennum við okkur, þegar sumarið er þá tínum við blóm.

Þórdís Emilía: Mér finnst mest gaman að teikna. Ég er alltaf teiknandi. Pabbi er á Ítalíu núna og þekkir fólk sem á eitthvert gallerí, hann hringdi í mig og sagði að fólkið væri að bjóða mér að halda myndlistarsýningu ásamt einhverjum átta ára strák sem á heima á Ítalíu.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 28. janúar 2017.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×