Kísilver á Bakka mun nota 66 þúsund tonn af kolum árlega Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. janúar 2017 17:53 Byggingar kísilvers PCC eru farnar að rísa á Bakka. Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Kísilverið á Bakka mun þurfa 66 þúsund tonn af kolum árlega til þess að standa undir framleiðslu á kísilmálmi. Brenna þarf kolin til þess að búa til kísilmálminn. Framkvæmdir við kísilverið ganga samkvæmt áætlun. Þetta kemur fram í umverfismati kísilvers PCC frá 2013 og RÚV fjallar um. Í umhverfismati PCC kemur fram að fyrir hvert tonn af kísilmálmi þurfi um 400 kíló af kolefnisgjafa, svo sem kolum, koks, viðarkolum, viðar eða kolaskauta. Útlit er fyrir að allt slíkt hráefni verði flutt inn til landsins. Þá segir einnig í skýrslunni að innihald kolefnis í kolum sé um 55% en að hámarki 20% í kurluðum við og því þurfi um sama magn af kolum á hverju ári og verksmiðjan framleiðir af kísilmálmi, eða um 66 þúsund tonn. 45 þúsund tonn þarf hinsvegar að flytja inn af við á ári, en viðarkurli er blandað saman við kolin. Samkvæmt upplýsingum frá PCC á Íslandi er ástæða þess að brenna þarf kol og við ekki sú að búa þurfi til orku, þar sem ofninn sjálfur sé keyrður áfram með rafmagni. Heldur er ástæðan sú að til þess að framleiða kísilmálm þarf að aðskilja sílikon frá súrefni í ofninunum en það gerist einungis með háum hita og til að koma í veg fyrir að súrefnið bindist því aftur eru kolefnin notuð. Segir í skýrslunni að ekki sé til betri leið til þess að framleiða kísilmálm á þessari stærðargráðu. Samkvæmt umsögn Skipulagsstofnunar um verksmiðjuna frá árinu 2013 er augljóst að mengunarefni frá verksmiðjunni muni hafa neikvæð áhrif á loftgæði í nágrenni verksmiðjunnar. Styrkur efnanna á þó að vera undir viðmiðum.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Sjá meira