Líkir óvörðum vefsíðum við gamla sveitasímann Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 22. febrúar 2017 13:00 Ef grænn lás birtist í vafra þá erum örugga vefsíðu að ræða. vísir
Jón Ólafsson, kerfisfræðingur og ritstjóri vefsins lappari.com, hefur undanfarna daga athugað hve öruggar vefsíður ýmissa íslenskra fyrirtækja eru þar sem óskað er eftir að fólk gefi upp persónuupplýsingar. Hann segir varhugavert að gefa upp persónuupplýsingar á vefjum þar sem tengingin er ekki örugg og líkir slíku við hinn gamla sveitasíma þar sem hægt var að hlera samtöl nágranna. „Ég hef alltaf útskýrt þetta þannig að þetta sé eins og gamli sveitasíminn versus nútímasími. Á gamla sveitasímanum gastu hlustað á það sem var í gangi sem þýðir að þú getur „hlustað á“ það sem notandinn er að slá inn, nafn, kennitölu, kortaupplýsingar ef því er að skipta. Þannig að þetta er í raun að tryggja að samskipti og þau gögn sem þú ert að senda inn, að þau séu bara á milli þín og síðunnar,“ segir Jón í samtali við Vísi. HTTPS, eða HTTP Secure, er samskiptastaðall fyrir öruggari samskipti yfir Internetið. Hann miðar að því að tryggja að samskipti notenda við vefsíður sem fara fram yfir HHTP séu dulkóðuð og þannig varin ýmsum árásum. Ef notendur sjá græna lásinn og HTTPS í vefslóð, þá er það - Staðfesting á að vefurinn sem þú ert að heimsækja, sé sá sem hann segist vera. - Staðfesting á að samskipti séu dulkóðuð og þannig auðkenni og persónulegar upplýsingar notenda varin. - Veitir notendum öryggistilfinningu. „Bara sem dæmi þegar þú ferð inn á bankann þinn þá færðu alltaf þennan græna lás í stikuna. Þetta segir þér sem notanda að þú sért tengdur við þann vef sem þú vilt vera tengdur við og að samskipti milli þín sem notanda og síðunnar eru dulkóðuð og varin (fyrir árásum). Það er eitthvað sem maður vill alltaf hafa, sérstaklega í bankasamskiptum og náttúrulega líka almennt á netinu. Þegar þú ert að slá inn nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og annað. Það er svona það sem ég hef verið að finna að, það eru allt of margar stórar síður og stór fyrirtæki sem hafa ekki verið að sinna þessu. Það er í rauninni ekkert mál að pikka upp hvað er í gangi þarna á milli.“Er auðvelt að nálgast persónuupplýsingar þegar vefsíður eru ekki öruggar?„Við skulum orða það þannig að ef maður hefur lágmarksþekkingu þá er það ekki stórvægilegt mál. Þetta er ekki eitthvað sem Jón Jónsson út í bæ er að gera en það er regla hjá öllum öryggissérfræðingum að allar síður þar sem þú slærð inn einhverjar persónulegar upplýsingar verður að vera varið með https.“ Jón hefur undanfarið birt færslur á lappari.com þar sem hann bendir á íslenskar vefsíður þar sem tengingin er ekki örugg. Hann segir mörg fyrirtæki hafa brugðist vel við ábendingum. Hann segir jafnframt að það sé ekki flókið að uppfæra vefi svo þeir verði öruggir. Hann segir það taka um 5-60 mínútur að beina HTTP umferð yfir á HTTPS. „Það er fullt af fyrirtækjum sem ég er búin að fara yfir og hafa samband við. Mörg stórfyrirtæki sem hafa brugðist mjög vel við eins og BYKO, Húsasmiðjan, Rúmfatalagerinn, ELKO. Þetta er dæmi um fyrirtæki sem hafa tekið mjög vel í þetta og lagað þetta hjá sér.“
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira