Dramatískur sigur í Síkinu hjá ÍR, þar sem Tindastólsmenn voru með yfirhöndina mest allan leikinn en ÍR komu sterkir til baka og settu vörnina í lás í fjórða leikhluta. Lokatölur 71-74, ÍR-ingum í vil.
Tindastólsmenn byrjuðu leikinn töluvert betur en ÍR-ingar voru samt alltaf stutt á eftir. Ryan Taylor fór á kostum í fyrsta leikhluta og setti fyrstu 8 stigin. Sigtryggur Arnar og Pétur Rúnar byrjuðu einnig frábærlega og drógu þeir vagninn fyrir Tindastól allan leikhlutann.
Í 2 leikhluta þá var varnarleikurinn sem að einkenndi spilamennsku beggja liða en það voru aðeins skoruð 9 stig fyrstu 5 mínúturnar samanlagt hjá báðum liðum. Í seinni hálfleik þá gáfu ÍR-ingar eftir og stólarnir fóru að auka forskot sitt en í lok 3 leikhluta var staðan 61-47 Tindastól í vil.
Í 4 leikhluta duttu ÍR-ingar heldur betur í gang og Tindastólsmenn hætta nánast, en áður en áhofendur vissu af þá voru ÍR-ingar komnir yfir. Þegar mínúta var eftir þá duttu Tindastólsmenn allt í einu í gang og minnkuðu muninn úr 7 stigum í 3 stig en seinasta skotið í leiknum var frá Pétri Rúnari og það small á hringnum en vildi ekki ofan í. Lokatölur 71-74.
Ryan Taylor leikmaður ÍR var áberandi bestur í kvöld þótt að Pétur Rúnar og Sigtryggur áttu báðir mjög góðan leik.
Umfjöllun: Tindastóll - ÍR 71-74 | Frábær útisigur Breiðhyltinga
