Vinsældir Jeremy Corbyn aukast á kostnað Theresu May Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. maí 2017 19:57 Jeremy Corbyn saxar á forskot May. Nordicphotos/AFP
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi, hefur aukið vinsældir sínar til muna á kostnað Theresu May, forsætisráðherra og leiðtoga Íhaldsflokksins ef má marka má skoðanakönnun Observer sem Guardian greinir frá. Meira en þriðjungur kjósenda eða 37 prósent sögðu að skoðun þeirra á forsætisráðherranum væri neikvæðari heldur en hún hefði verið í upphafi kosningabaráttunnar gegn 25 prósentum sem sögðu skoðun sína nú jákvæðari. Hins vegar sögðu 39 prósent kjósenda að skoðun þeirra á Corbyn væri jákvæðari nú heldur en í upphafi gegn 14 prósentum sem sögðu að þeir væru neikvæðari í garð leiðtogans. Því er ljóst að vinsældir Corbyn hafa aukist en í upphafi kosningabaráttunnar sögðust 56 prósent kjósenda frekar treysta May sem forsætisráðherra heldur en Corbyn. Íhaldsflokkurinn nýtur enn mest fylgis í skoðanakönnunum með rúmlega 45 prósenta fylgi en Verkamannaflokkurinn hefur að undanförnu sótt í sig veðrið og mælist nú með 35 prósenta fylgi. Munurinn á fylgi flokkanna hefur því ekki gert annað en að minnka síðan kosningabaráttan hófst.
Kosningar í Bretlandi Mest lesið Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Innlent Vaktin: Dómari kveður upp um refsingu Diddy Erlent Sagt að njóta ótruflaðrar ástar í Venesúela Innlent Látinn fara eftir að hafa neitað Trump um sverð í eigu Eisenhower Erlent Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Innlent „Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“ Innlent Bein útsending: Siglt áleiðis til Gasa Erlent Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína Innlent Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Innlent Segist breyttur maður og biðlar til dómarans Erlent Fleiri fréttir „Það vill enginn spila eftir reglum sem eru samdar annars staðar“ Rekja andlát dóttur að hluta til samsæriskenninga móður Fyrsta konan sem verður erkibiskupinn af Kantaraborg Vaktin: Dómari kveður upp um refsingu Diddy Einn hinna látnu skotinn af lögreglu og annar særður Finna mikla nálykt frá rústunum Bein útsending: Siglt áleiðis til Gasa Látinn fara eftir að hafa neitað Trump um sverð í eigu Eisenhower Segist breyttur maður og biðlar til dómarans Hamas liðar vilja ekki afvopnast Flugvellinum í München lokað vegna drónaumferðar Nafngreina árásarmanninn í Manchester Segist eiga í vopnuðum átökum við eiturlyfjasmyglara Árásin í Manchester skilgreind sem hryðjuverk Leiðtogafundur í Danmörku: „Rússar munu ekki stoppa fyrr en tilneyddir“ Tveir látnir og þrír alvarlega særðir eftir árás í Manchester Afganir fagna því að vera aftur komnir í samband við umheiminn Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Jane Goodall látin Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið „Dimmur dagur“ í sögu Slóvakíu Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Höfuðpaur tælingarhóps dæmdur í þrjátíu og fimm ára fangelsi Chunk er loksins „feitasti“ björninn Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina Tæplega hundrað nemenda saknað Sjá meira