Skemmtilegast að hjóla fyrir fólkið í Sunnuhlíð Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 2. október 2017 06:00 Svanur Þorsteinsson með hjólið sitt. Vísir/anton brink
Við ætlum að halda eitthvað aðeins upp á þetta. Við erum að fara í bústað austur á Apavatni,“ segir Svanur Þorsteinsson hjólreiðagarpur en hann fagnar sjötugsafmæli í dag. Erla, dóttir Svans, fer fögrum orðum um föður sinn í bréfi sem hún sendi Fréttablaðinu. „Hann er sá þrettándi af sextán systkinum og hörkuduglegur með einsdæmum. Svanur er nefnilega sjálfboðaliði hjá samtökunum Hjólað óháð aldri og fer hjólaferðir með aldraða og alzheimersjúklinga á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þrisvar í viku,“ segir í bréfinu. Svanur segist hafa einkar gaman af hjólaferðunum. „Þetta er með því skemmtilegasta sem ég hef gert,“ segir hann en Svanur hefur hjólað fyrir Sunnuhlíð frá því um miðjan júlí í fyrra fyrir samtökin Hjólað óháð aldri.Svanur á hjólinu með Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóra í farþegasæti.vísir/svanurSvanur segir að það vanti sjálfboðaliða til að hjóla fyrir hjúkrunarheimilin. „Það er sérstaklega gott fyrir eldri borgara sem hættir eru að vinna því þetta gengur ekki upp ef maður er í fullu starfi. „Eina hjólið sem hefur verið hjólað svolítið á er Sunnuhlíðarhjólið því ég er að hjóla á því og ég er hættur að vinna.“ „Ég hef hjólað mikið í gegnum tíðina. Landssamtök hjólreiðamanna hittast og fara í hjólreiðaferðir á laugardögum og í einni hjólreiðaferðinni í fyrra þá var farið inn í Hátún þar sem Öryrkjabandalagið er, þar var verið að kynna þessi hjól og ég hreifst af þessu verkefni og fór á námskeið og lærði á þetta,“ segir Svanur en um er að ræða hjól þar sem tveir farþegar geta setið í með hjólarann fyrir aftan sig. Í bréfi Erlu segir að Svani sé annt um að geta glatt vistmenn með þessum valkosti á útiveru. Hann vilji gera allt sem í valdi sínu stendur til að það sé hægt. „Þar á meðal bauð hann bæjarstjóra Kópavogs í hjólatúr til að sýna honum hvar laga þyrfti gangstéttar og kanta til að hjólið kæmist um Kópavogsdalinn.“ Utan hjólamennskunnar segir Erla að Svanur sé ætíð reiðubúinn að veita hjálparhönd. „Hvort sem um er að ræða flutninga, pallasmíði eða skutlast erindagjörðir fyrir börn sín og er óþreytandi að sækja íþróttaæfingar og keppnisleiki barnabarna sinna átta, hvort sem um ræðir fótbolta, fimleika eða ungbarnaleikfimi.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Fleiri fréttir Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Sjá meira