Fannst geggjað að fá tilnefningu og verðlaunin voru bónus Guðný Hrönn skrifar 6. mars 2017 11:45 Blær gekk í gegnum langt undirbúningsferli fyrir Hjartastein og öll vinnan bar svo sannarlega árangur. Vísir/Anton Brink
Blær Hinriksson hlaut Edduverðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í Hjartasteini. Verðlaunin hafa mikla þýðingu fyrir hann, einkum í ljósi þess að hann er rétt að byrja feril sinn í leiklist. „Þegar ég heyrði að ég hafði verið tilnefndur til Edduverðlauna þá hugsaði ég með mér að það væri alveg geggjað að fá tilnefningu. Svo var Baldur líka tilnefndur , sem gerir þetta enn þá betra,“ segir Blær sem hlaut Edduverðlaun fyrir hlutverk sitt í Hjartasteini, en mótleikari hans í myndinni, Baldur Einarsson, var líka tilnefndur. „Áður en hátíðin hófst þá var mér nánast sama hver myndi vinna, ég vonaði auðvitað að það yrði ég eða Baldur, en mér fannst það samt ekki skipta máli,“ segir Blær, sem var himinlifandi með tilnefninguna. Hann segir verðlaunin sjálf hafa verið algjöran bónus. „Þessi verðlaun komu mér svolítið á óvart vegna þess að ég er svo ungur, ég er bara 15 ára.“ En þrátt fyrir ungan aldur hefur Blær lent í ýmsu, hann var til að mynda nærri drukknaður í sundlaug sem barn og svo lenti hann fyrir bíl þegar hann var nýstiginn úr strætisvagni. Þetta er reynsla sem hjálpaði honum að kalla fram tilfinningar í hlutverki sínu í Hjartasteini. „Þegar maður var að fara í erfiðar senur þá gat maður hugsað til baka til þess sem maður hefur í reynslubankanum. Ég hugsaði líka mikið til baka til afa míns sem er dáinn. Ég sakna hans, hann var svo skemmtilegur og góður maður. Ég og bróðir minn vorum bestu vinir hans. Þannig að þegar ég var að fara í erfiðar senur þá hugsaði ég um hann og skoðaði myndir af honum,“ útskýrir Blær sem kallaði fram tár með því að minnast afa síns.Baldur og Blær voru valdir bestu leikararnir á kvikmyndahátíðinni í Marrakech í Marokkó í desember fyrir hlutverk sín í Hjartasteini.NORDICPHOTOS/AFPSpurður út í hvernig áhuginn á leiklist hafi kviknað kveðst Blær vera alinn upp í leiklistarfjölskyldu og snemma var hann byrjaður að gera eftirhermur og fara á leiklistarnámskeið. Spurður nánar út í eftirhermuna segist hann taka Guðna Ágústsson vel. „Fyrst var pabbi minn alltaf að grínast í Guðna, þeir þekkjast eitthvað smá. Mér fannst þetta svo skemmtilegt og fór líka að grínast með að herma eftir honum. Og einhvern tímann, þegar ég var lítill krakki, þá vorum við á hestamannamóti og sáum Guðna. Þá sagði pabbi við mig: „Ef þú ferð upp að honum og hermir eftir honum þá gef ég þér ís á eftir,“ og ég gerði það. Ég labbaði upp að honum, heilsaði og byrjaði að herma eftir honum,“ rifjar Blær upp hlæjandi og segir Guðna hafa skellihlegið og tekið vel í þetta. „En aðallega kemur áhuginn frá fjölskyldunni. Pabbi er leikari, bróðir hans er söngvari og leikari, bróðir minn er leikari og svo framvegis. Þetta er allt í kringum mig.“Ekkert mál að fá frí frá skólaÞegar Blær er svo spurður út í framtíðarplön segir hann tímann verða að leiða það í ljós. „Mig langar auðvitað mikið í leiklist en svo er ég líka á fullu í handbolta,“ segir Blær sem tók sér tveggja mánaða frí frá handboltanum og skólanum á meðan á tökunum stóð. Eins hefur hann þurft að taka sér frí frá námi og tómstundum til að ferðast til útlanda á kvikmyndahátíðir til að kynna myndina. En var ekkert vandamál að taka frí frá skóla? „Nei, kennararnir eru svo góðir og skilja að þetta er ævintýri fyrir mig. Þeir skilja að það er lærdómsríkt að ferðast og kynnast nýjum menningarheimum. En ég vinn auðvitað öll skólaverkefni og læri það sem samnemendur mínir eru að gera. Ég þarf bara stundum að vinna það upp eftir á en ég fæ hjálp frá kennurum,“ segir Blær. Blær er ekkert að stressa sig á framtíðinni. „Vonandi fær maður svo bara einhver fleiri tilboð í leiklistinni. Þetta kemur allt í ljós, ég er bara í 10. bekk þannig að ég hef nægan tíma eins og er til að taka ákvörðun um hvort ég vilji einbeita mér sérstaklega að handboltanum, leiklistinni eða einhverju öðru.“
Mest lesið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið Klæddu sig upp sem frambjóðendur Lífið Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Lífið Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Lífið Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið „Nú er þessi sprettur á enda“ Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Lífið Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Forsetaefni, Disney og tónlist Klæddu sig upp sem frambjóðendur Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Ofboðslega stolt af dóttur sinni Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór „Nú er þessi sprettur á enda“ Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Fréttatía vikunnar: Kosningar, eldgos og meistarar Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Frambjóðendum gekk misvel í hraðaspurningum Kjúklinganaggar hollu stjúpunnar Innipúkinn farinn að taka á sig mynd Sigga á Grund er fyrsti heiðursborgari Flóahrepps Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Þetta höfðu netverjar að segja um kappræðurnar Ellefu eftirtektarverð eldhús Forsetaáskorunin: Grefur upp gamlar gersemar úti um allan heim. Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Skrifuðu bók um Sólrúnu Öldu og brunann í Mávahlíð Nafn konunnar flúrað á það allra heilagasta Annar bakaradrengur í ofninum Sjáðu svartþrestina yfirgefa hreiðrið Af vængjum fram: Eins og í bíómynd þegar þau byrjuðu loksins saman Forsetaáskorunin: Áhugatöframaður og hefur safnað skeljum og eldspýtustokkum Kosningavökumolar Höllu og Bjössa Millie Bobby og Bon Jovi yngri í hnapphelduna Einstök hæð í retró stíl við Laufásveg Margar konur sem leita á fæðingarheimilin sjálfar á barnsaldri Sjá meira