Fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu ritstýrir Þjóðmálum Kjartan Kjartansson skrifar 20. apríl 2017 16:37 Gísli Freyr var dæmdur í átta mánaða fangelsi vegna lekamálsins. Vísir/GVA
Gísli Freyr Valdórsson, sem sakfelldur var fyrir að leka trúnaðarupplýsingum um hælisleitanda sem aðstoðarmaður innanríkisráðherra, er tekinn við sem ritstjóri tímaritsins Þjóðmála. Kjarninn greinir frá þessu. Vitnar Kjarninn til lokaðrar stöðuuppfærslu á Facebook-síðu Gísla Freys. Fyrsta tölublaðið undir hans ritstjórn sé í dreifingu. Upplýsingar um ritstjórn Þjóðmála er ekki að finna á vefsíðu tímaritsins. Þjóðmál er íhaldssamt tímarit um stjórnmál og menningu sem kemur út ársfjórðungslega. Tekur Gísli Freyr við af Óla Birni Kárasyni sem ritstjóri tímaritsins en hann tók sæti sem þingmaður eftir þingkosningarnar í haust. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Gísla Frey, sem var pólitískur aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur þáverandi innanríkisráðherra, í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi árið 2014 eftir að hann játaði að hafa lekið upplýsingum um hælisleitandann Tony Omos til fjölmiðla árið áður. Upphaflega hafði hann neitað sök. Hanna Birna sagði af sér sem innanríkisráðherra vegna lekamálsins svonefnda skömmu eftir dóminn yfir Gísla Frey. Gísli Freyr hefur einnig reynslu úr blaðamennsku en hann var blaðamaður á Viðskiptablaðinu um nokkra hríð. Vísir sagði frá því vorið 2015 að Gísli Freyr hefði snúið sér að lúxusferðaþjónustu með fyrirtækinu Luxury Adventures.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira