Stakk af í miðju samtali við lögregluna Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. desember 2017 06:27 Ökumaðurinn náði ekki að hrista af sér lögreglubílinn. VÍSIR/EYÞÓR
Ökumaður, sem lögreglan hafði afskipti af á fjórða tímanum í nótt, reyndi að stinga af í miðju samtali við lögreglumenn. Maðurinn hafði verið stöðvaður á Höfðabakka í Reykjavík en grunur leikur á að hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna. Þegar lögreglumenn tóku að ræða við manninn steig hann á bensíngjöfina og hófst þá eftirför sem lauk í Hraunbæ. Málalyktir eru ekki reifaðar í skeyti lögreglunnar. Lögreglan hafði að sama skapi afskipti af einstaklingum í Vesturbæ Reykjavíkur sem sagðir voru „líklega í innbrotshugleiðingum,“ eins og það er orðað. Við leit fundust á þeim eggvopn og fíkniefni sem allt var haldlagt af lögreglu. Ekki fara sögur af því hvort einstaklingarnir hafi brotist inn einhvers staðar. Þá var ráðist á mann á knæpu í Hafnarfirði skömmu eftir miðnætti. Einn var handtekinn vegna málsins og er það nú til rannsóknar. Alls komu 16 mál inn á borð lögreglunnar í nótt.
Lögreglumál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira