„Við höfum óskað eftir því að vera sýnileg því eins og staðan er núna erum við eitt best geymda leyndarmálið um að það séu almenningssamgöngur í boði við flugstöðina,“ segir Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS).
Almenningssamgöngur eru í dag ekki merktar sérstaklega sem valkostur á skiltum í Leifsstöð fyrir farþega og ferðamenn líkt og leigubílar, rútur og bílaleigur. Þá gagnrýnir sambandið, sem aðstandandi 55 hjá Strætó, aðstöðuleysið sömuleiðis.

„Þar sem er engin lýsing og engar merkingar. Inni í flugstöðinni sjálfri er heldur ekki að finna neinar merkingar, þannig að þetta er mjög bagalegt ástand fyrir ferðamenn sem vilja nýta sér almenningssamgöngur en finna þær ekki með góðu móti,“ segir Berglind sem finnst að Strætó eigi að vera jafnsýnilegur og aðrir. Segir hún aðspurð að rekstur leiðarinnar hafi verið þungur og verið rekinn með halla.
Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia, bendir á að nýlega hafi farið fram útboð á stæðunum í kringum flugstöðina þar sem tvö stóru rútufélögin greiði gjald fyrir góða staðsetningu. Skiljanlega væri erfitt að bjóða þeim sem ekki greiða fyrir stæði sömu staðsetningu og þeim sem geri það. Strætó hafi, líkt og aðrir sem ekki greiði fyrir aðstöðuna, stæði við skammtímastæðin.
„Svo gerum við þeim góð skil á vefnum okkar, Kefairport.is og .com þar sem skráðar eru ferðir Strætó og hlekkir á vef þeirra og tímatöflur. Við teljum okkur vera að gera þessu góð skil. Við förum ákveðið langt í að kynna þau en svo eru fyrirtækin bara með sína eigin markaðssetningu á sinni vöru. Strætó er þannig að fá meira en önnur fyrirtæki sem ekki er sérstakur samningur við.“
Aðspurður segir Guðni að Strætó geti keypt auglýsingaskilti innanhúss ef áhugi er á. Isavia hyggist þó bæta merkinguna fyrir Strætó á útisvæðinu á næstunni.
Strætó er ódýrari valkostur fyrir ferðamenn en leigubílar og heldur ódýrari en fargjöld rútufyrirtækjanna. Strætó með leið 55 frá Leifsstöð til Reykjavíkur kostar í dag 1.760 kr. og tekur ferðin rúman klukkutíma. Grayline Airport Express selur sömu ferð á 2.400 krónur og Reykjavík Excursions selur ferðina á 2.500 kr. Ferðir rútufyrirtækjanna taka á bilinu 35-45 mínútur.