Hafnar kröfum Ungverja og Slóvaka um skiptingu flóttamanna Atli Ísleifsson skrifar 6. september 2017 08:49 Framkvæmdastjórn ESB vonast nú til að hægt verði að hraða skiptingu kvótaflóttamannanna milli aðildarríkjanna. Vísir/Getty
Evrópudómstóllinn hefur hafnað kröfum ungverskra og slóvakskra stjórnvalda varðandi ákvörðun ráðherraráðs Evrópusambandsins um skiptingu kvótaflóttamanna á milli aðildarríkjanna. Málið snýr að ákvörðun innflytjendaráðherra aðildarríkjanna sem tekin var á haustdögum 2015, þegar flóttamannastraumurinn til Evrópu var sem mestur. Var þar ákveðið að dreifa allt að 160 þúsund flóttamönnum, sem höfðu komið til Grikklands og Ítalíu, á milli aðildarríkjanna. Ungverjar og Slóvakar mótmæltu ákvörðuninni, sem tekin var eftir atkvæðagreiðslu í ráðherraráðinu í Brussel. Vildu þeir meina að leiðtogar aðildarríkjanna hefðu átt að taka samhjóða ákvörðun um málið. Þessu er Evrópudómstóllinn ekki sammála og segir ákvörðun ráðherraráðsins í samræmi við meginregluna um meðalhóf sem fram kemur í sáttmála sambandsins. Framkvæmdastjórn ESB vonast nú til að hægt verði að hraða skiptingu kvótaflóttamannanna milli aðildarríkjanna. Einungis hafa um 28 þúsund af þeim 160 þúsund flóttamönnum sem samkomulagið kvað á um, verið fluttir til aðildarríkjanna. Framkvæmdastjórnin lagði á sínum tíma áherslu á að kvótarnir væru bindandi fyrir öll aðildarríkin. Auk Ungverja og Slóvaka mótmæltu Tékkar og Rúmenar samkomulaginu. Ungverjar hafa ekki tekið á móti einum einasta kvótaflóttamanni frá því að kvótarnir voru samþykktir fyrir tveimur árum.
Flóttamenn Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira