Formaður Samfylkingar vill vita hvað hinir ríkustu eiga Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 16. desember 2017 22:50 Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, krefst svara. vísir/anton brink
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, leitast við að glöggva sig betur á eignum og tekjum þeirra sem mest áttu árið 2016. Logi hefur lagt fram fyrirspurn um eignir og tekjur landsmanna sem var beint til Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Kjarninn sagði fyrstur miðla frá þessu en í fréttinni segir auk þess að fyrirspurnin sé sambærileg þeirri sem Árni Páll Árnason, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, lagði fram í árslok 2014. Fyrirspurn Loga er skipt upp í fjóra liði. Í þeim fyrsta er spurt hvert eigið fé hafi verið hjá þeim 5% landsmanna sem mest áttu árið 2016. Hið sama vildi hann fá að vita hjá 1% og 0,1% landsmanna sem mest höfðu það sama ár. Logi vill vita hvert hlutfall eigin fjár þeirra er af eigin fé allra landsmanna árið 2016 og biður hann um tölur fyrir árin 1997-2015 til samanburðar. Í öðrum lið spyr Logi hverjar hafi verið heildareignir þeirra 5%, 1% og 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2016 og hvert hafi verið hlutfall heildareigna þeirra af heildareignum allra landsmanna árið 2016 og spyr hann jafnframt um sambærilegar tölur fyrir árin 1997-2015. Í þriðja lið spyr Logi hverjar hafi verið tekjurnar hjá tekjuhæstu 5%, 1% og 0,1% landsmanna árið 2016, með og án fjármagnstekna og hvert hafi verið hlutfall tekna þeirra af tekjum allra landsmanna árið 2016 og spyr hann auk þess út í sambærilegar tölur fyrir árin 1997-2015. Í fjórða og síðasta liðnum spyr Logi hvað tekjuhæstu 10%, 5%, 1% og 0,1% landsmanna áttu árið 2016 stóran hluta af eigin fé landsmanna og heildareignum landsmanna árið 2016 og biður hann um tölur fyrir árin 1997-2015 til samanburðar.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira