Leyfir sér að vera vongóður um að Birna finnist í dag Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. janúar 2017 11:50 Grímur Grímsson. vísir/anton brink
Grímur Grímsson, sem stýrir rannsókn lögreglunnar á hvarfi Birnu Brjánsdóttur, sem hefur verið saknað í heila viku, kveðst vongóður um að umfangsmikil leit sem hófst í morgun og standa mun í allan dag skili því að Birna finnist. Hann segir gríðarlega þekkingu í björgunarsveitunum varðandi það hvernig leita á að fólki. „Já, ég ætla að leyfa mér að vera vongóður um að við finnum hana í dag,“ segir Grímur. Aðspurður segir Grímur að hann sé ekki nær því að vita hvar hún er en leggur áherslu á mikilvægi björgunarsveitanna og þeirra þátt. „Ég get ekki sagt að við séum nær en eftir ákveðinni aðferðafræði eru sérstaklega björgunarsveitirnar að reikna það út hvar er líklegast að hún sé. Það er mikil þekking til staðar í björgunarsveitunum varðandi það hvernig á að leita að fólki og það er með hlutlægum hætti verið að setja upp aðgerðir og ég held að það séu góðar líkur á því að þetta skili okkur árangri,“ segir Grímur. Leitin er sú umfangsmesta sem Landsbjörg hefur skipulagt en um 500 björgunarsveitarmenn taka þátt í henni. Leitarsvæðið er gríðarlega stórt, nær frá Borgarnesi og allt að Selfossi auk Reykjanesskagans.Rýna gögn og strúktúra málið Ekki er stefnt að því um helgina að yfirheyra Grænlendinga tvo sem sitja í haldi grunaðir um að hafa orðið Birnu að bana. Á meðan björgunarsveitirnar leita að Birnu fer tími lögreglunnar í að rýna rannsóknargögnin og reyna að ná utan um heildarmyndina. „Rannsóknin beinist að því að rýna gögnin sem við erum með, setja saman myndefni, skrifa texta með því og binda þetta allt saman. Það sama á við um símagögnin og framburði. Í svona rannsókn þegar mikið gengur á þá vantar stundum að ganga frá. Það eru margir sem hafa komið að rannsókninni og mikið utanumhald þannig að um helgina náum við að strúktúra málið.“ Lögreglan óskaði í gær eftir aðstoð ökumanna sem kunna að búa yfir myndefni sem tekið var á laugardagsmorgninum á milli klukkan 7 og 11:30 frá höfuðborgarsvæðinu og á stórum hluta suðvestanlands, það er á Reykjanesi, Suðurlandi (að Selfossi) og Vesturlandi (upp í Borgarfjörð). Aðeins var óskað eftir myndefni sem kunni að sýna rauða Kia Rio-bifreið en Grímur segir að enn sem komið er hafi enginn haft þetta í fórum sínum.Útilokað að bíllinn hafi farið í Hvalfjarðargöngin Varðandi það hversu langt rauði bíllinn kann að hafa farið á laugardagsmorgun vill Grímur ekki gefa mikið upp. Greint var frá því á RÚV í morgun að lögreglan sé búin að reikna það út að það vanti 300 kílómetra í ferðir bílsins en Grímur vill ekki staðfesta það. „Það er samt sem áður búið að reikna út hvað væri eðlilegt að þessum bíl væri ekið og svo hvað er eftir og þá erum við að reikna út hversu langt bíllinn gæti hafa farið á þessum tíma sem við höfum ekki upplýsingar um,“ segir Grímur. Grímur segir að upplýsingar úr myndavélum Vegagerðarinnar og svo úr Hvalfjarðargöngunum hjálpi til við að afmarka leitarsvæðið. Þannig sjáist bíllinn ekki í myndavélum í göngunum og leitin miði því ekki að því að leita mikið fyrir ofan þá línu. Hins vegar geti lögreglan ekki útilokað veginn um sjálfan Hvalfjörð. Þá hefur lögreglan ekki haft uppi á ökumanni hvítrar bifreiðar sem hún lýsti eftir í gær en Grímur segir að lögreglunni hafi borist fjölmargar ábendingar varðandi bílinn. Er talið að hann sé af gerðinni Honda Accord.
Birna Brjánsdóttir Tengdar fréttir Umfangsmesta leit sögunnar: Fimm hundruð björgunarsveitarmenn leita að Birnu Alls munu um 500 björgunarsveitarmenn af öllu landinu taka þátt í leitinni að Birnu Brjánsdóttur í dag. Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg kemur fram að þetta sé umfangsmesta leit sem félagið hefur skipulagt. 21. janúar 2017 08:11 Leitin að Birnu: Svæði útilokuð sem eru ófær Kia Rio Ein umfangsmesta leit björgunarsveitanna, leitin að Birnu Brjánsdóttur, fer fram um helgina. Ráðist var í skipulag og útreikninga í gær til að útiloka ákveðin svæði frá leitinni. Fjórar klukkustundir eru óútskýrðar í ferðum rauða Kia Rio bílsins. 21. janúar 2017 07:00 Leitin að Birnu: Stefna á að leysa 2000 verkefni um helgina Þorsteinn G. Gunnarsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir þetta umfangsmestu leit sem Landsbjörg hefur farið í. Björgunarsveitarfólk eru um 500 talsins. Lagt verður áherslu á svæði frá Borgarnesi að Selfossi og allan Reykjanesskagann. Áherslan er fyrst of fremst lögð á vegi og vegaslóða á þessu svæði. 21. janúar 2017 10:01 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira
Umfangsmesta leit sögunnar: Fimm hundruð björgunarsveitarmenn leita að Birnu Alls munu um 500 björgunarsveitarmenn af öllu landinu taka þátt í leitinni að Birnu Brjánsdóttur í dag. Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg kemur fram að þetta sé umfangsmesta leit sem félagið hefur skipulagt. 21. janúar 2017 08:11
Leitin að Birnu: Svæði útilokuð sem eru ófær Kia Rio Ein umfangsmesta leit björgunarsveitanna, leitin að Birnu Brjánsdóttur, fer fram um helgina. Ráðist var í skipulag og útreikninga í gær til að útiloka ákveðin svæði frá leitinni. Fjórar klukkustundir eru óútskýrðar í ferðum rauða Kia Rio bílsins. 21. janúar 2017 07:00
Leitin að Birnu: Stefna á að leysa 2000 verkefni um helgina Þorsteinn G. Gunnarsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir þetta umfangsmestu leit sem Landsbjörg hefur farið í. Björgunarsveitarfólk eru um 500 talsins. Lagt verður áherslu á svæði frá Borgarnesi að Selfossi og allan Reykjanesskagann. Áherslan er fyrst of fremst lögð á vegi og vegaslóða á þessu svæði. 21. janúar 2017 10:01