Kanye og Deadmau5 í hár saman: „Spilarðu í afmælisveislum?“ Jóhann Óli Eiðsson skrifar 2. mars 2016 20:47 Deadmau5 og Kanye West saman á sviði þegar Tidal var kynnt til sögunnar. vísir/getty
Bandaríska hiphop listamanninum Kanye West og kanadíska raftónlistarmanninum Deadmau5 lenti saman á Twitter í dag. Grínaðist Kanye meðal annars hvort Deadmau5 tæki að sér að skemmta í afmælisveislum og hvort hann gæti komið fram með höfuð Minnu músar í stað síns venjulega hjálms. Deilan hófst eftir að West deildi mynd á Twitter sem sýndi hann hlusta á Death With Dignity, upphafslag plötunnar Carrie & Lowell með Sufjan Stevens en platan kom út í fyrra. Það sem meira er þá sýndi næsti flipi síðuna Pirate Bay og að hann hefði verið að leita að tónlistarforritinu Serum.What the fuck @kanyewest ... Can't afford serum? Dick. pic.twitter.com/8B2aiyORZs— deadmau5 (@deadmau5) March 2, 2016 Let's start a Kickstarter to help @kanyewest afford a copy of Serum.— deadmau5 (@deadmau5) March 2, 2016 He needs a small loan of 200$ #prayforyeezy— deadmau5 (@deadmau5) March 2, 2016 Þetta virðist hafa farið öfugt ofan í Deadmau5 en það er listamannsnafn Joel Zimmermann. Hann brást hinn versti við og setti út á það að Kanye myndi ekki hafa efni á því að kaupa forrit sem kostar 200 dollara eða rétt rúmlega 26.000 íslenskar krónur. Það þótti einnig undarlegt að West væri að hlusta á tónlist með Youtube en ekki í gegnum tónlistarveituna Tidal. Rapparinn hefur verið einn ötulasti talsmaður tónlistarveitunnar Tidal og hefur nýjasta afurð hans, The Life of Pablo, eingöngu verið aðgengileg á veitunni og hvergi annars staðar. Deilan þykir einnig áhugaverð í ljósi þess að West og Zimmermann eru báðir meðal stofnenda Tidal veitunnar. Í samtali við tónlistarsíðuna Pitchfork segja almannatenglar rapparans að umrædd tölva sé ekki tölvan hans Kanye. Hún sé af gerðinni Samsung en alkunna sé hins vegar að umbjóðandi þeirra noti aðeins Mac tölvur. Tístið hafi verið hugsað sem háðsádeila á hve oft plötu hans, The Life of Pablo, hefur verið stolið meðal annars í gegnum Pirate Bay.# hash tag you raised Tidal's subscriptions by a whopping downloads— KANYE WEST (@kanyewest) March 2, 2016 # I'm bored ### when you get married will your wife have a giant minnie mouse head? # This brightened up my day… thank you dead-mow-five— KANYE WEST (@kanyewest) March 2, 2016 Í dag svaraði Kanye West fyrir sig á Twitter. Spurði hann meðal annars hver í teymi Kanadamannsins hefði það hlutverk að flytja músarhöfuðið milli landa og hvort hann hygðist láta brúður sína klæða sig sem Minnu mús í brúðkaupi þeirra. Einnig fannst honum gífurlega sniðugt að gantast með að nafn hans væri borið fram sem dead-mow-five. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem West lætur allt flakka á Twitter en skömmu fyrir útgáfu plötu sinnar baunaði hann duglega á Wiz Khalifa. Wiz Khalifa var eitt sinn á föstu með Amber Rose en hún og West áttu eitt sinn í ástarsambandi.Awww @kanyewest are u mad I'm not around to play in ur asshole anymore? #FingersInTheBootyAssBitch☝ — Amber Rose (@DaRealAmberRose) January 27, 2016 Einnig kallaði West eftir fjárhagsaðstoð frá Mark Zuckerberg. Eiginkona hans, Kim Kardashian, lét hafa eftir sér í fjölmiðlum að hún stæði að baki manni sínum í gegnum súrt og sætt en síðar meir fóru sögusagnir á kreik um að skilnaður þeirra væri í kortunum.Tweets by @kanyewest
Tengdar fréttir Stephen Colbert rífur Kanye West í sig: Ekki sniðugt að biðja stofnanda Facebook um pening á Twitter Bandaríski þáttastjórnandinn Stephen Colbert tók rapparann Kanye West fyrir í þættinum Late Show. 18. febrúar 2016 12:00 Kanye West setti tóninn fyrir tískuvikuna í New York. Frumsýndi Yeezy Season 3 og frumflutti nýja plötu í Madison Square Garden. 12. febrúar 2016 09:45 Taylor Swift lét Kanye West heyra það á Grammy-verðlaununum Taylor Swift varð í gær fyrsta konan til að vinna Grammy-verðlaunin fyrir bestu plötu ársins tvisvar en fimmta sólóplata hennar, 1989, var valin sú besta á verðlaunahátíðinni í gær. 16. febrúar 2016 08:01 Kanye gaf Kim 150 jólagjafir Kardashian fjölskyldan tekur jólin alla leið. 29. desember 2015 09:45 Kanye West segist skulda milljarða Kanye West er einn þekktasti tónlistarmaðurinn í heiminum og hefur hann sett sinn svip á rappsenuna undanfarinn áratug og rúmlega það. 15. febrúar 2016 09:50 Mest lesið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Fleiri fréttir Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Sjá meira
Stephen Colbert rífur Kanye West í sig: Ekki sniðugt að biðja stofnanda Facebook um pening á Twitter Bandaríski þáttastjórnandinn Stephen Colbert tók rapparann Kanye West fyrir í þættinum Late Show. 18. febrúar 2016 12:00
Kanye West setti tóninn fyrir tískuvikuna í New York. Frumsýndi Yeezy Season 3 og frumflutti nýja plötu í Madison Square Garden. 12. febrúar 2016 09:45
Taylor Swift lét Kanye West heyra það á Grammy-verðlaununum Taylor Swift varð í gær fyrsta konan til að vinna Grammy-verðlaunin fyrir bestu plötu ársins tvisvar en fimmta sólóplata hennar, 1989, var valin sú besta á verðlaunahátíðinni í gær. 16. febrúar 2016 08:01
Kanye West segist skulda milljarða Kanye West er einn þekktasti tónlistarmaðurinn í heiminum og hefur hann sett sinn svip á rappsenuna undanfarinn áratug og rúmlega það. 15. febrúar 2016 09:50