Glamour

Kanye gaf Kim 150 jólagjafir

Ritstjórn skrifar
Kanye, Kim og North West.
Kanye, Kim og North West.
Kardashian-fjölskyldan er ekki þekkt fyrir að fara hefðbundnar leiðir í lífinu, og það sama á við þegar kemur að hátíðum eins og jólunum en óhætt er að segja að fjölskyldan hafi tekið hátíðina með trompi. 

Kanye West gaf eiginkonu sinni, Kim Kardashian, 150 jólagjafir þetta árið - en hún er nýbúin að eignast annað barn þeirra, soninn Saint. Ekki var West sjálfur í búðarrápi í desember heldur flaug hann aðstoðarkonu sinni til Ítalíu þar sem gjafirnar voru keyptar en allt eru þetta hlutir í fataskáp raunveruleikastjörnunnar. 

Herlegheitunum deildu þau á appi fjölskyldunnar, Kardashianpedia en þar mátti var hægt að fylgjast með jólunum þeirra í beinni útsendingu. 





Kanye's gifts to Kim he literally bought her a whole new wardrobe for her 'Bounce Back' body after Saint. [: kardashianpedia]

A photo posted by # Kimberly Kardashian West (@teamkimye) on

CHRISTMAS CARD 2015: ALL YOU NEED IS LOVE

A photo posted by Kim Kardashian West (@kimkardashian) on






×