Kalla eftir lokun umdeildrar mosku Samúel Karl Ólason skrifar 8. mars 2016 14:49 Abu Bilal Ismail.
Danska sjónvarpsstöðin TV2 birti á dögunum heimildaþátt um samfélag múslima í Danmörku. Þátturinn hefur valdið miklum usla. Imam Grimhøj moskunnar segir í þættinum að grýta eigi konur sem haldi fram hjá til dauða. Abu Bilal Ismail segir einnig að þeir sem segi skilið við trú sína eigi að vera drepnir. Falin myndavél var notuð til að taka upp ummælin, sem sjá már hér. Texti myndbandsins er á dönsku. Þá hefur TV2 einnig birt myndband af því þegar Ismail kallar eftir því að börn sem biðji ekki til guðs verði barin. Þetta er fjarri frá því að vera í fyrsta sinn sem að deilur koma upp varðandi moskuna. Í júlí 2014 kallaði Ismail eftir því að guð dræpi alla gyðinga. Þá lýstu forsvarsmenn moskunnar yfir stuðningi við hryðjuverkasamtökin Íslamskt ríki. Þrátt fyrir mikla reiði Dana vegna yfirlýsingarinnar steig formaður stjórnar moskunnar fram skömmu seinna og sagðist vilja íslamskt ríki um heim allan. Lögreglan í Danmörku telur að um 24 danskir ríkisborgarar sem hafi flust til Sýrlands og Írak og barist þar fyrir vígahópa hafi sótt moskuna. Nokkrum sinnum hefur verið reynt að loka moskunni, en eftir að TV2 birti fyrri hluta heimildaþáttar um moskuna hafa fjölmargir kallað aftur eftir lokun hennar. Þar á meðal eru stjórnmálamenn sem hafa kallað eftir því að forsvarsmenn moskunnar verði sendir úr landi. Í kjölfar umfjöllunar TV2 hafa yfirvöld Árósa dregið stuðning sinn við byggingu nýrrar mosku til baka. Þá kom í ljós að forsvarsmenn moskunnar höfðu stofnað sérstakt sjaría-ráð. Meðlimir ráðsins tóku ákvarðanir varðandi málefni múslima í samfélagi þeirra með tilliti til islamskra laga. Þar á meðal ákváðu þeir hvort að hjón hefðu leyfi til að skilja. Ráðið hefur nú verið leyst upp „af virðingu við dönsk gildi“, eins og fram kom í yfirlýsingu frá moskunni.Fyrri partur heimildaþáttanna
Mest lesið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Erlent Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Erlent Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Innlent 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Innlent Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Innlent Segir Trump ekki reiðan Íslandi Erlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Fleiri fréttir Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Sjá meira