Jónatan víkur og við tekur Felix sem Júróvisjónkóngur Íslands Jakob Bjarnar skrifar 17. maí 2016 16:04 Jónatan hefur haldið utan um þátttöku Íslands í Júróvisjón, fyrir hönd RÚV, árum saman. En, nú tekur Felix við því hlutverki.
Þátttaka í Júróvisjón-söngvakeppninni kostaði RÚV 30 milljónir. Fulltrúar Íslands voru ekki fleiri en verið hefur og þá er það til að taka að Jónatan Garðarsson víkur, sem sérlegur yfirmaður Júróvisjón-mála Íslands. Skarphéðinn Guðmundsson er yfirmaður innlendrar dagskrárgerðar hjá RÚV og hann gerir fastlega ráð fyrir því að áætlanir standist, en þær gera ráð fyrir því að heildarkostnaður vegna þátttöku RÚV í Júróvisjón verði 30 milljónir króna. Skarphéðinn var spurður hvort það hafi ekki verið svo að stærri hópur Íslendinga hafi farið á vegum RÚV utan til að fylgjast með og greina frá keppninni en hann segir svo ekki vera. „Fjöldi fulltrúa Íslands í Stokkhólmi, keppendur, fulltrúar frá RÚV, bæði í tengslum við flutning atriðisins sjálfs, utanumhald og fararstjórn og fréttaflutning, var nákvæmlega sá sami og verið hefur síðustu árin. Sem var og verið hefur undanfarin ár algjör lágmarks fjöldi til að yfir höfuð sé hægt sé að taka þátt og sinna öllu sem því tengist – enda erum við að tala um einn allra fámennasta sendihóp allra keppnisatriða.“ Gísli Marteinn Baldursson lýsti keppninni að þessu sinni en í fyrra var það Felix Bergsson sem sá um þann þátt. Felix var engu að síður á vettvangi og sendi vinum sínum á Facebook myndskeið og greindi frá stemmningunni. Hvað var hann að gera þarna? „Felix var drekkhlaðinn verkefnum, kom að öllu utanumhaldi, aðstoð við keppendur, umsýslu í kringum þátttökuna, kynningarmálum fyrir þátttöku Íslands gagnvart erlendum fjölmiðlum og til fjölmiðla á Íslandi,“ segir Skarphéðinn. Og heldur áfram: „Formlegt hlutverk hans var aðstoðarmaður yfirmanns íslensku sendinefndarinnar, Jónatans Garðarssonar, því um leið var Felix að kynna sér í þaula öll þau gríðarlegu umsvif sem starfi yfirmanns Eurovision tengjast, því eins og þér hefur greinilega borist til eyrna þá stefnir allt í að þetta verði seinasta ferð Jónatans, sem verið hefur yfirmaður Eurovision fyrir hönd Íslands nær samfleytt síðan 2001.“
Mest lesið Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Lífið Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Lífið Lykla-Pétur fauk á haf út Lífið Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Lífið Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lífið Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Lífið Girnileg pizza úr smiðju BBQ kóngsins Lífið samstarf Landsliðsmaður gifti sig í Vík í Mýrdal Lífið Vann glæsilegan vinning í sumarbókaleik Bylgjunnar og Vísis Lífið samstarf „Núna þori ég miklu meira“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lykla-Pétur fauk á haf út Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Landsliðsmaður gifti sig í Vík í Mýrdal Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Elta drauminn um hægara líf eftir fjögur ár á Íslandi Sólveig og Halldór gáfu dótturinni nafn Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Fyrst skíði og nú golf Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Árin hjá Spotify ævintýri líkust Einar fékk meira hár en Baldur „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Sjá meira