Hættu við að ráða upplýsingafulltrúa í miðjum klíðum Birgir Olgeirsson skrifar 25. febrúar 2016 09:15 84 sóttu um stöðu upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. 11 komust í viðtal og fimm af þeim voru boðaðir aftur í viðtal áður en hætt var við ráðningarferlið síðastliðið vor. Vísir/Vilhelm
Enginn upplýsingafulltrúi er starfandi hjá Landhelgisgæslunni þrátt fyrir að stofnunin hafi auglýst eftir umsækjendum um starfið síðastliðið vor. Landhelgisgæslan fékk fyrirtækið Góð ráð, sem sérhæfir sig í stjórnendaleit, til að sjá um ráðningarferlið en þegar nokkuð var liðið á ferlið ákvað Landhelgisgæslan að hætta við allt saman. Var því verkefnum sem áttu að fylgja starfi upplýsingafulltrúans skipt á milli starfsfólks Landhelgisgæslunnar, að því er fram kemur í svari Svanhildar Sverrisdóttur, skrifstofustjóra Landhelgisgæslunnar, til Vísis um málið. Alls sóttu 84 um stöðuna, ellefu voru boðaðir í viðtal og af þeim var fimm boðið að koma í annað viðtal áður en ákveðið var að hætta við ráðninguna. Svanhildur segir ýmsar ástæður fyrir þeirri ákvörðun.Svanhildur ásamt forstjóranum, Georg Lárussyni.Mynd af vef LandhelgisgæslunnarEkki svo að umsækjendur hafi ekki verið hæfir „Það kom í ljós eftir að ferlið var hafið og rætt var við mögulega kandídata að skynsamlegt væri að endurskoða skipan þessara mála hjá Landhelgisgæslunni og þar á meðal starfsskyldur upplýsingafulltrúans. Það varð því niðurstaðan að skipta þessum verkefnum á milli starfsfólks hér innanhúss og hagnýta þá vinnu sem fór í undirbúning ráðningarferlisins til frekari stefnumótunar um framtíðarskipan samskiptamála Landhelgisgæslunnar. Sú vinna er enn í gangi,“ segir Svanhildur. Aðspurð hvað það var við ferlið sem varð til þess að Landhelgisgæslan ákvað að endurskoða skipan þessara mála segir Svanhildur Landhelgisgæsluna einfaldlega hafa viljað móta upplýsingamálin betur og skilgreina nánar starfsskyldur upplýsingafulltrúans áður en lengra yrði haldið. Aðspurð hvort það hafi verið mat Landhelgisgæslunnar og Góðra ráða að enginn umsækjendanna hefði verið nógu hæfur til að gegna stöðunni svarar hún því neitandi. Fyrirtækið Góð ráð er systurfyrirtæki Góðra samskipta. Kostnaður Landhelgisgæslunnar vegna vinnu Góðra ráða nam 490 þúsund krónum, að sögn Svanhildar.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur viðburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Sjá meira