Helmingi færri þurfa nú aðstoð bæjarins Svavar Hávarðsson skrifar 24. maí 2016 07:00 Mikil uppbygging er hafin í Helguvík sem styrkir atvinnumöguleika á Suðurnesjum. vísir/vilhelm
Rúmlega helmingi færri einstaklingar eða fjölskyldur þáðu fjárhagsaðstoð vegna framfærslu frá Reykjanesbæ fyrstu mánuði þessa árs en á sama tímabili árið 2014. Þetta kemur fram í tölum frá velferðarsviði bæjarins. „Á milli áranna 2014 og 2015 fækkaði verulega í hópi þeirra einstaklinga og fjölskyldna sem fengu fjárhagsaðstoð frá Reykjanesbæ. Þegar mest var í mars 2014 voru 240 einstaklingar eða fjölskyldur sem fengu greidda fjárhagsaðstoð, í mars 2015 voru 166 sem þáðu aðstoð og 128 í mars 2016. Í apríl 2016 var fjöldinn kominn niður í 116,“ segir Bjarney Rós Guðmundsdóttir, teymisstjóri virkniteymis hjá Reykjanesbæ. Bjarney rekur þennan góða árangur til breytinga á verklagi við vinnslu umsókna strax í upphafi. Aukin áhersla var lögð á að koma umsóknum í réttan farveg sem fyrst, greina aðstæður skjólstæðinga betur og finna þeim viðeigandi úrræði. Gerðar voru auknar kröfur um þátttöku í virkniúrræðum og samvinna við stofnanir varðandi veikindi, endurhæfingu og atvinnuþátttöku skjólstæðinga var efld.Bjarney Rós GuðmundsdóttirAð sögn Bjarneyjar tók atvinnumarkaðurinn á Suðurnesjum stakkaskiptum á fyrri hluta síðasta árs. „Það hefur skipt miklu máli fyrir þá einstaklinga sem áður þáðu fjárhagsaðstoð en voru með fulla vinnufærni. Við höfum séð mikla breytingu á samsetningu hópsins. Áður var stærsti hópurinn sem þáði fjárhagsaðstoð vinnufærir einstaklingar en í dag er uppistaða hópsins að stærstum hluta óvinnufærir. Helstu hindranir sem við stöndum frammi fyrir með þann hóp er hversu erfitt er að fá þjónustu heilbrigðisstofnana og langur afgreiðslutími umsókna hjá Tryggingastofnun ríkisins.“ Þegar tölur um atvinnuleysi eru gaumgæfðar sést sá umsnúningur sem Bjarney lýsir vel. Atvinnuleysi dróst mikið saman árið 2015 og var núna í apríl 2,6 prósent. Allt útlit er fyrir að skortur verði á starfsfólki í ýmis störf síðar á þessu ári. Þessi staða er þeim mun merkilegri ef staðan strax eftir hrunið er sett í samhengi – atvinnuástandið var þar langverst og atvinnuleysisprósentan fór hæst í tæp 15 prósent árið 2009.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 24. maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira