Hvalir virðast góð mælistika á loftslagsbreytingar og hlýnun Svavar Hávarðsson skrifar 21. maí 2016 07:00 Hnúfubak fjölgar sem gleður gesti hvalaskoðunarfyrirtækja sérstaklega. Mynd/Norðursigling
Gísli Víkingsson Ein skýrasta birtingarmynd áhrifa loftslagsbreytinga og hlýnunar sjávar á Íslandi virðist mega merkja á umtalsverðum breytingum sem orðið hafa á útbreiðslu og fjölda skíðishvalategunda við Ísland undanfarna þrjá áratugi. Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur á Hafrannsóknastofnun, fjallaði um efnið á málstofu stofnunarinnar nýlega. Þar birti hann valdar niðurstöður hvalatalninga og -rannsókna og er grófa myndin sú að frá því að skipuleg hvalatalning hófst árið 1987 hefur langreyði og hnúfubak fjölgað umtalsvert við landið og útbreiðsla steypireyðar virðist hafa færst norðar. Hrefnu fjölgaði einnig fram yfir síðustu aldamót, en hefur fækkað mjög á landgrunninu síðan 2001. „Á landgrunninu eru það fyrst og fremst hrefna og hnúfubakur sem eru algeng. Hnúfubakurinn hefur í rauninni algjörlega tekið yfir landgrunnið af hrefnunni frá 2001 og til 2007; mikil fækkun í hrefnu á móti mikilli fjölgun í hnúfubak,“ sagði Gísli og sagði hnúfubakinn orðna ráðandi tegund á landgrunninu. Fækkun á hrefnu sé allra helst greinileg við vestanvert landið, þó fækkun sé líka merkjanleg fyrir norðan land. Þetta tengir Gísli við hrun sandsílastofnsins, en sandsíli var yfirgnæfandi í fæðu hrefnu fyrir aldamótin 2000. Segja megi að hrefnan hafi brugðist við sandsílahruni og tilfærslu loðnu frá Norðurlandi og að ströndum Grænlands með breyttu fæðuvali annars vegar, en ekki síður að stór hluti þeirrar hrefnu sem var á landgrunninu hafi flutt sig um set í fæðuleit. Það er þó óstaðfest. Niðurstöður rannsókna í hnotskurn sagði Gísli vera að allt bendi til mikilla breytinga í vistkerfi hafsins við Ísland sem komi fram í breyttri fæðusamsetningu, orkubúskap, frjósemi og útbreiðslu hvala. Til viðbótar hafi rannsóknir sýnt að fæðutímabil hvala hér við land nær lengra fram á haustið en áður var talið – hvort sem það er nýtilkomið eða ekki. „Það virðist sem þessi aukni sjávarhiti sé grunnorsök allra þessara breytinga, þó eftir sé að sanna það. [...] Spurningin er hvort þessarar hlýnunar sjávar sé þegar farið að gæta á Íslandi, en þessar niðurstöður benda sterklega til þess. Á hitt ber auðvitað að líta að þegar farið er aftur í tímann þá erum við ekki enn þá komin langt upp úr þeim hitastigum í hafinu sem þekktust áður fyrr, þannig að hvort þetta mun að einhverju leyti ganga til baka, er erfitt að segja,“ sagði Gísli í erindi sínu. Greinin birtist í Fréttablaðinu 21.maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira