Gamlir vinir á næstu Solstice hátið Stefán Þór Hjartarson skrifar 7. desember 2016 12:00 Foo Fighters drógu Nilfisk upp á svið á tónleikum sínum í Höllinni, en þá voru þeir aðeins 16 ára og eins og sést hefur það verið nokkuð mikið fjör.
Nú hefur verið tilkynnt um nokkur af þeim erlendu böndum sem munu spila á Secret Solstice hátíðinni næsta sumar. Þar má finna nokkra Íslandsvini og auk þess gamla vini sem margir muna eftir frá tíunda áratugnum. Foo FightersStrákarnir í Foo Fighters eru enn einir Íslandsvinirnir á þessum lista en þeir hafa komið tvisvar hingað til lands og enn oftar hrópað eitthvað um ágæti landsins á sviði hér og þar. Eins og frægt er mætti bandið árið 2003 og ferðaðist meðal annars um Suðurland þar sem þeir rákust á strákana í Nilfisk sem voru á æfingu í bílskúr á Stokkseyri. Þeim leist svo vel á þá að þeir fengu þá til að hita upp á tónleikum sveitarinnar í Höllinni. Árið 2005 þegar Foo Fighters komu aftur héldu þeir svo tónleika á Stokkseyri – frítt. Þvílíkt góðir gaurar. Foo Fighters er auðvitað gríðarlega vinsæl hljómsveit sem spratt upp úr rústum Nirvana árið 1994 rétt eftir dauða Kurts Cobain. Foo Fighters hefur verið í pásu nokkuð lengi síðustu árin en er þó ekki hætt og hafa þeir kapparnir undirstrikað það nokkuð oft með alls konar skilaboðum og myndböndum á heimasíðunni sinni. Og þeir eru varla hættir fyrst þeir hafa boðað komu sína í Laugardalinn næsta sumar.Pharoah Monch Pharoah Monch hóf feril sinn í hljómsveitinni Organized Konfusion, sem varð þó aldrei fræg, þannig lagað – átti aldrei smelli á neinum listum, en sveitin lifir í kollum hiphophausa um allan heim og er oft talin ein besta rapphljómsveit allra tíma. Platan þeirra Stress: The Extinction Agenda er oftar en ekki sett á lista yfir bestu rappplötur allra tíma. Eftir að hljómsveitin lagði upp laupana hóf Pharoah Monch sólóferil sinn og er kannski hvað þekktastur fyrir lagið Simon Says sem ennþá fær að heyrast í klúbbum og á kappleikjum um allan heim. Lagið notast við sampl úr japönsku kvikmyndinni Gojira Tai Mosura eða Godzilla vs Mothra og var Pharoah Monch kærður fyrir notkun sína á samplinu. Það olli honum talsverðum vandræðum og varð meðal annars til þess að hann gat ekki gefið út neinar plötur í nokkur ár og ekki þénað neitt á laginu sjálfu, sem hlýtur að vera ákveðinn skellur miðað við hvað þetta lag hefur fengið að heyrast mikið síðustu sautján árin.Richard Ashcroft er hér með speglagleraugu og það sem virðist vera gasgríma sem hann ber um hálsinn.Richard Ashcroft Richard Ashcroft var söngvari hljómsveitarinnar The Verve sem var ákaflega vinsæl á tíunda áratugnum og gerði meðal annars lagið Bitter Sweet Symphony sem aðdáendur britpops kalla gjarnan besta lag allra tíma. Sem sólólistamaður hefur Richard Ashcroft náð miklum vinsældum og hefur Chris Martin úr Coldplay meðal annars kallað hann besta söngvara í heimi sem verða að teljast ansi stór orð. Hans frægasta lag sem sólólistamanns er tvímælalaust A Song for the Lovers frá árinu 2000. Það er oft talað um það sem Verve-lag fyrir misskilning, enda mjög Verve-legt en ástæða þess er að lagið átti upphaflega að koma út með hljómsveitinni en það varð aldrei að veruleika og lagið heyrðist ekki fyrr en Richard notaði það sjálfur á sinni fyrstu sólóplötu, Alone with Everybody.The Prodigy hefur áður komið í Laugardalinn og kannast því líklega vel við svæðið og mögulega líka sögu þess.The Prodigy Fyrir margan Íslendinginn er breska hljómsveitin The Prodigy tíundi áratugurinn holdi klæddur, með fríkaðar linsur og grænan hanakamb. Sveitin hefur komið hingað til lands nokkrum sinnum, spilaði meðal annars á hinni alræmdu tónlistarhátíð Uxa árið 1995 sem margir eiga vafalaust góðar minningar frá, ef þeir á annað borð voru að búa til minningar þar. The Prodigy hefur auðvitað átt heilan helling af smellum allt síðan snemma á tíunda áratugnum. Firestarter, Poision, Breath, Smack My Bitch Up?… og það væri hægt að halda endalaust áfram. The Prodigy eru hvergi nærri hætt – í fyrra kom út ný plata frá henni og sveitin hefur verið að túra grimmt eftir útgáfu hennar. Þeir segjast þó hættir að gefa út breiðskífur og ætli héðan í frá einungis að gefa út stuttskífur (EP-plötur), hvað sem það nú þýðir.Foreign Beggars Breska hljómsveitin Foreign Beggars spilar villta blöndu af rappi og dubstep/elektróník og hefur verið nokkuð vinsæl í heimalandi sínu og víðar um Evrópu. Þetta verður í annað sinn sem sveitin spilar á Secret Solstice hátíðinni en hún heimsótti Laugardalinn árið 2015 og fékk þá fínustu viðtökur. Foreign Beggars var stofnuð árið 2002 í London og þá var hljómsveitin að vinna með grime og aðra „neðanjarðar“ rappstíla. Síðar meir varð tónlist Foreign Beggars eins konar blanda af rappi og háværum raftónlistarstefnum eins og dubstep og drum n bass og varð talsvert vinsæl fyrir vikið, sérstaklega á toppi dubstep stormsveipsins sem reið yfir heiminn í kringum 2009 og dó út skömmu síðar. Þeirra vinsælasta lag er líklega Contact en það er fínasta dæmi um hvers lags hljómsveit Foreign Beggars er, bæði lagið og myndbandið.
Mest lesið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Lífið Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Lífið Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið Tróð upp í Norræna partýinu Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Bakaríið í beinni Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Sjá meira