Gylfi Þór valinn maður leiksins Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. febrúar 2016 07:30
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði fjórða markið sitt á árinu í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þegar Swansea gerði jafntefli við West Bromwich Albion á útivelli, 1-1. Gylfi Þór kom sínum mönnum yfir með laglegu marki á 64. mínútu, en velska liðið varð fyrir því óláni að fá á sig jöfnunarmark í uppbótartíma. Það er nú í 16. sæti með 26 stig, fimm stigum frá fallsæti. Íslenski landsliðsmaðurinn fær átta í einkunn fyrir frammistöðu sína á velska vefmiðlinum WalesOnline og er valinn maður leiksins. „Við fengum að sjá að sjálfstraustið er komið aftur í Íslendinginn. Hann tengdi betur við samherja sína en hann hefur gert í langan tíma. Hann var nálægt því að skora ótrúlegt mark og kom liðinu svo yfir,“ segir um Gylfa í einkunnagjöfinni. Gylfi Þór fær átta í einkunn fyrir frammistöðu sína líkt og Suður-Kóreumaðurinn Ki Sung-Yeung og markvörðurinn Lukasz Fabianski, en Gylfi var stjarnan leiksins, að því fram kemur í einkunnagjöf WalesOnline. Gylfi Þór er nú búinn að skora í fjórum af fimm deildarleikjum ársins fyrir Swansea á nýju ári og er í heildina búinn að skora sex mörk fyrir velska liðið í ensku úrvalsdeildinni á yfirstandandi leiktíð. Markið hjá Gylfa Þór má sjá í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Mest lesið Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Jón Arnar grét það ekki að sjá Daníel slá þrjátíu ára Íslandsmet sitt Sport Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Uppgjörið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum Íslenski boltinn Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera Enski boltinn Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Körfubolti Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn Endurkoma í lagi hjá BKG og elleftu heimsleikarnir í röð Sport Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Enski boltinn Fleiri fréttir Rodri gagnrýnir hugarfar Arsenal manna: Þar liggur munurinn Dagný framlengir samning sinn við West Ham Mikel Arteta missti af möguleikanum Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera 23 ára og búinn að vinna deildina oftar en Rooney, Agüero og Terry Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Sjá meira