Slösuðust við að smygla sér inn á Sálarball Jóhann Óli Eiðsson skrifar 25. júlí 2016 14:00 Frá Grundarfirði. vísir/vilhelm
Um helgina fór fram bæjarhátíðin Á góðri stund í Grundarfirði. Boðið var upp á ýmis konar skemmtidagskrá auk balls þegar sól fór að lækka á lofti. Útlit er fyrir að hátíðin hafi farið vel fram utan minniháttar óhappa. „Enn sem komið er þá er ekkert annað sem bendir til þess en að hátíðin hafi farið vel fram,“ segir Theodór Þórðarson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, við Vísi. „Það voru einhverjar minniháttar stimpingar á ballinu en það er varla í frásögur færandi.“ Á Sálarballinu voru um fimmhundruð manns samankomnir en talsvert fleiri tóku þátt í skemmtidagskránni fyrr um kvöldið. Að mati Theodórs voru ríflega þúsund gestir samankomnir í bænum. Samkvæmt heimildum Vísis slasaðist ungur maður þegar hann ætlaði að spara sér aðgöngumiðann á dansleikinn. Reyndi hann að smygla sér inn með því að stökkva yfir girðingu en slasaði sig þegar hún gaf sig. „Það var par sem reyndi að klifra yfir járngrind en lentu undir henni þegar hún gaf sig. Hann slasaðist meir en hún og jafnvel talið að um fótbrot hafi verið að ræða,“ segir Theodór. Hann vissi hins vegar ekki í hvaða tilgangi fólkið hafði ætlað að príla yfir girðinguna. Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir við ölvun við akstur auk þess sem að upp komst um örfá minniháttar fíkniefnabrot. Þau brot hafi hins vegar verið í algjöru lágmarki að sögn yfirlögregluþjónsins. Engar líkamsárásir voru kærðar eftir hátíðina. „Hér var fólk bara samankomið til að gleðjast,“ segir Theodór að lokum.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Sjá meira