Bandaríkin: Táningur á svifbretti hrasaði og skaut frænda sinn til bana Atli Ísleifsson skrifar 10. febrúar 2016 21:08 Lavardo Fisher bjó í Ocoee, úthverfi Orlando. Mynd/Twitter
Þrettán ára bandarískur drengur lést um helgina eftir að átján ára frændi hans hrasaði á svifbretti (e. hoverboard) og hleypti af skoti úr skammbyssu sem hæfði drenginn í höfuðið. Í frétt Orlando Sentinel kemur fram að banamaðurinn hafi sagt lögreglu að um slys hafi verið að ræða. Hinn þrettán ára Lavardo Fisher lést af völdum áverka á sjúkrahúsi í Flórída eftir að hafa orðið fyrir skotinu í Ocoee, úthverfi Orlando, á sunnudaginn. Sentinel greinir frá því að tveir frændur Lavardo, banamaðurinn þeirra á meðal, hafi orðið vitni af slysinu. Blóðblettir hafi verið á fötum þeirra og hafi þeir upphaflega reynt að kenna öðrum um drápið. Þannig hafi þeir sagt lögreglu að vinur þeirra, „Skeet“, hafi litið í heimsókn og sýnt þeim byssu sína þegar skotinu var hleypt af. Sögðust þeir hafa kynnst Skeet á nálægum körfuboltavelli deginum áður. Lögregla fann þó engan með þessu nafni, og viðurkenndu drengirnir síðar að drengurinn væri í raun uppspuni. Í skýrslu lögreglu kemur fram að það sem raunverulega gerðist var að Lavardo hafi verið að spila tölvuleik, en fyrir aftan hann hafi frændi hans staðið á svifbretti, misst jafnvægið og skotið úr byssunni sem hann hélt á.Í frétt Washington Post segir banamanninum hafi enn ekki verið birt ákæra um manndráp í gær.Lögregla hefur þó ákært eiganda byssunnar, ættingja drengjanna, en hann er dæmdur glæpamaður og hefur ekki heimild til að eiga skotvopn. Hann var ekki heima þegar drengurinn var skotinn.Ocoee Pop Warner player killed in accidental shooting when teen playing w/gun may have fallen from hoverboard @WESH pic.twitter.com/FxqB1G9a83— bob kealing (@bobkealingwesh) February 9, 2016
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira