Mun stærri bikar í verðlaun fyrir strákinn en stelpuna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. september 2016 09:00 Stelpurnar í 5. flokki FH brugðu á leik við verðlaunaafhendinguna. Mynd/FHingar.net
Fimleikafélag Hafnarfjarðar verðlaunaði á sunnudaginn leikmenn í yngri flokkum knattspyrnudeildar félagsins. Mættir voru iðkendur á aldrinum fjögurra til ellefu ára, þ.e, iðkendur í 8. flokki og upp í 5. flokk auk foreldra. Ragnheiður Birna Björnsdóttir var ein þeirra sem fylgdist með hátíðarhöldunum en stærðarinnar bikar á verðlaunaborðinu vakti athygli hennar og fleiri. Ragnheiður segir muninn á bikurunum hafa verið áberandi þar sem þeir stóðu á borðinu og biðu nýrra eigenda, til eins árs, en um farandbikara var að ræða. Fólk hafi almennt ekki verið meðvitað um hver ætti að fá hvaða bikar. Fyrst hafi stúlkunum verið afhent verðlaun í 5. flokki og svo strákunum. „Stelpan í 5. flokki fékk gyltan bikar og var sæl og glöð,“ segir Ragnheiður og í framhaldinu hafi verið farið í myndatöku. Þá var röðin komin á strákunum og þar hafi einn skarað fram úr. „Hann fékk stærðarinnar silfurbikar, álíka stór og þessi sem þeir í meistaraflokki fá,“ segir Ragnheiður og á við Íslandsmeistarabikarinn FH-ingar lönduðu í gærkvöldi. „Maður vissi ekkert hver fengi hvaða bikar en svo fengu stelpurnar litla bikarinn og strákarnir þann stóra.“ Lið Hattar í 5. flokki kvenna fékk bikarinn til vinstri á TM-mótinu í Eyjum í fyrra. 6. flokkur karla hjá Hetti fékk bikarinn til hægri á Orkumótinu síðar um sumarið. ÍBV breytti um stefnu eftir gagnrýni og eru bikararnir nú af sömu stærð. Strákarnir alltaf svo heppnir Ragnheiður segist ekki hafa getað notið augnabliksins eftir verðlaunaafhendinguna, hún hafi verið ósátt við hvernig staðið var að málum. Drengurinn hennar sagði við hana: „Við strákarnir erum alltaf svo heppnir.“ Ragnheiði var ekki skemmt.Hún ákvað því að vekja athygli á málinu, skrifaði um afhendinguna á Facebook-síðu sína og í hópinn Karlar gera merkilega hluti. Stjórnendur yngri flokka hjá FH svöruðu Ragnheiði á Facebook og útskýrðu hvers vegna munur væri á bikurunum. Ástæðan væri sögulegs eðlis.Þannig hefðu foreldrar gefið annan bikarinn til 5. flokks karla til minningar um unga drengi sem létust. Fyrsta Íslandsmeistaralið FH í kvennaflokki hefði svo gefið hinn bikarinn. Báðir bikararnir væru gjöf og því ekki ákvörðun félagsins að strákarnir fengju stærri bikar en stelpurnar.Ragnheiður segir það gott og blessað en það sé engu að síður hennar skoðun að keyptur verði stærri bikar fyrir stelpurnar.Myndir frá verðlaunaafhendingunni má sjá hér að neðan. Þar má sjá bikarana sem um ræðir. Hin öfluga stuðningsmannasíða FH, FHingar.net, birti myndirnar á Facebook-síðu sinni.Sumar gjafir eldast illa„Við fullorðna fólkið mótum umhverfið og sýn barnanna á kynin. Það sem börnin taka heim með sér af svona uppskeruhátíð er að stelpurnar fengu lítinn bikar en strákarnir stóran.“Hvatti hún í framhaldinu yngri flokka FH til að passa upp á að gera ekki upp á milli kynjanna á svo áberandi máta. Enda velti börnin lítið fyrir sér hver gefi bikarinn. Stjórnendur yngri flokka segja í svari til Ragnheiðar á Facebook að Barna- og unglingaráð muni endurskoða verklag við móttöku og veitingu slíkra gjafa. Ragnheiður fagnar því og hrósar FH-ingum fyrir viðbrögðin. Fróðlegt verði að sjá hvernig þeir taki á málinu.„Sumar gjafir eldast illa,“ segir Ragnheiður. Þannig detti henni ekki í hug að gefa dóttur sinni gamla matreiðslubók sem gengið hafi á milli kynslóða kvennamegin í ættinni. „Þar er farið yfir hve fín og tllbúin með matinn konan eigi að vera þegar karlinn kemur heim úr vinnunni, og leyfa honum að hvíla sig,“ segir hún.Því sé best að kaupa bara flotta og stóra bikara fyrir bæði kynin og setja hina, sem vissulega hafi sögulegt gildi, upp í glerhillurnar í Kaplakrika með öðrum eldri bikurum.
Tengdar fréttir Ósætti á Orkumótinu: Bönnuðu stelpu að spila stærsta leik ævi sinnar Þjálfari Gróttu fékk þær skýringar frá mótanefnd að Orkumótið væri strákamót og landsleikurinn ekki fyrir stelpur. 26. júní 2016 15:53 Stelpurnar fá einstaka bikara að ári eins og strákarnir Framkvæmdastjóri ÍBV segir málið félaginu ekki til sóma. Stjórnarmaður í fimleikadeild Hattar segir holdgerving þess sem sé að í íþróttum barna hér á landi. 28. júlí 2015 15:49 Mest lesið Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Erlent Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Fleiri fréttir Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Til marks um tíma þegar fólk vildi gefa eitthvað til baka Hiti á fyrsta fundi: „Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki“ Aldrei upplifað annan eins hita í Lundúnum Nú mega yngri en 25 ára ekki leigja golfbíl Fluttur á sjúkrahús eftir að hafa ekið á kyrrstæðan bíl úti í vegkanti Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Skattamál: „Sumir kalla það hækkun, aðrir kalla það að hætta að fá afslátt“ Nóróveira í ostrum Fær ekki lögbundna þjónustu og óvissa um framtíð listaverks Sjá meira
Ósætti á Orkumótinu: Bönnuðu stelpu að spila stærsta leik ævi sinnar Þjálfari Gróttu fékk þær skýringar frá mótanefnd að Orkumótið væri strákamót og landsleikurinn ekki fyrir stelpur. 26. júní 2016 15:53
Stelpurnar fá einstaka bikara að ári eins og strákarnir Framkvæmdastjóri ÍBV segir málið félaginu ekki til sóma. Stjórnarmaður í fimleikadeild Hattar segir holdgerving þess sem sé að í íþróttum barna hér á landi. 28. júlí 2015 15:49