Móðir kærir Hendrix fyrir hönd ólögráða dóttur Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. desember 2016 15:40 Hendrix er rekinn í kjallaranum við Stórhöfða 17. Reksturinn er með öllu ótengdur veitingastaðnum Nings á efri hæð hússins. Vísir
Hildur Ýr Ísberg, móðir 17 ára stúlku, hefur kært skemmtistaðinn Hendrix við Gullibrú til lögreglunnar eftir að staðurinn bauð dóttur hennar bjórkút í aðdraganda 18 ára afmælisins. Í samtali við Vísi segir Hildur að dóttir hennar hafi fengið einkaskilaboð frá skemmtistaðnum á Facebook þar sem henni var boðinn bjórkútur gegn því að hún héldi afmælið sitt á staðnum. Enginn skrifar undir skilaboðin en viðtakandanum er bent að hringja í símanúmer staðarins til að fræðast frekar um tilboðið. „Dóttir mín sýndi mér skilaboðin, mér fannst þau út í hött og því ákvað ég að fara með þetta lengra,“ segir Hildur og bætir við að lögreglan sé nú með málið til athugunar. Haukur Vagnsson, framkvæmdastjóri skemmtistaðarins, segist ekki þekkja til þessa tiltekna máls, hann hafi fyrst heyrt af því í fjölmiðlum, en mbl greindi fyrst frá.Stúlkan líklega villt á sér heimildirHann segir starfsmenn staðarins ekki halda utan um Facebooksíðuna sem sendi skilaboðin heldur hafi síðunni verið útvistað. „Þetta kemur nú ekki frá okkur, þessi boð. Við erum með aðila sem sér um Facebókarsíðuna fyrir okkur og sér um að bóka afmælin í salinn. Hann hefur greinilega eitthvað farið út fyrir verksvið sitt,“ segir Haukur. Sá sem stýrir Facebooksíðunni hafi yfirlit yfir vini Hendrix og geti því séð hverjir eigi afmæli á næstunni. Alla jafna fá þeir sem ekki hafa náð áfengiskaupaaldri tilboð sem þessi. Haukur gerir því ráð fyrir því að dóttir Hildar hafi annað hvort vilt á sér heimildir eða falið aldur sinn á Facebook til þess að slíkt boð hafi ratað á hana. Fyrir því séu mörg dæmi. „Það er þá viðkomandi sem er að gera eitthvað rangt en ekki við,“ segir Haukur. „Við höfum sett ítrekað inn á síðuna og sent skilaboð á línuna um að þeir sem eru ekki orðnir 18 ára skuli vinsamlegast afvina Hendrix.“ Áður hefur verið fjallað um Hendrix í tengslum við ungan aldur gesta, nú síðast í maí síðastliðnum þegar lögregla lokaði staðnum í kjölfar unglingaskemmtunar.Sjá einnig: Framkvæmdastjóri Hendrix segir aðgerðir lögreglu ólögmætar og hyggst kæraHaukur undirstrikar að á Hendrix séu skýrar reglur um að þeir sem ekki séu orðnir tvítugir fái ekki afgreitt áfengi og að enginn sem sé yngri en 18 ára fái að vera á staðnum eftir klukkan 22. Hann bíður nú viðbragða lögreglunnar.
Tengdar fréttir Hendrix lokað í nótt vegna unglingadrykkju Staðnum lokað og reksturinn stöðvaður. 14. maí 2016 10:36 Framkvæmdastjóri Hendrix segir aðgerðir lögreglu ólögmætar og hyggst kæra Skemmtistaðnum Hendrix var lokað í nótt. 14. maí 2016 13:56 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira
Framkvæmdastjóri Hendrix segir aðgerðir lögreglu ólögmætar og hyggst kæra Skemmtistaðnum Hendrix var lokað í nótt. 14. maí 2016 13:56