Skaut sig í fótinn við fuglaveiði Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 10. október 2016 11:17 Maðurinn var að búa sig undir fuglaveiði Vísir/Vilhelm
Um klukkan sjö í morgun barst lögreglu tilkynning um mann sem hafði orðið fyrir slysaskoti á Helluvaðssandi, norðaustan við Hellu. Maðurinn var að búa sig undir fuglaveiði þegar skot hljóp úr byssu, sem hann var með, í fót hans. Sjúkrabifreið kom á staðinn og flutti manninn á slysadeild, en ekki liggur fyrir hve alvarlega hann er slasaður. Þetta var meðal verkafna lögreglunnar á Suðurlandi um helgina, en samkvæmt tilkynningu frá embættinu voru slys og ófrarir áberandi. Karlmaður handarbrotnaði aðfaranótt sunnudags eftir að hafa hoppað af orði niður á stól og þaðan í gólfið á veitingastað á Selfossi. Maðurinn var fluttur á heilsugæslustöðina á Selfossi til skoðunar. Þá axlar- og fótbrotnaði kona eftir að hafa velt vélsleða á Langjökli við Skálpanes. Konan var í snjósleðaferð og hafði velt sleðanum en náð að koma honum á réttan kjöl aftur. Stuttu síðar valt sleðinn aftur með þeim afleiðingum að konan slasaðist. Hún var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Rétt fyrir klukkan fjögur aðfaranótt laugardags barst lögreglunni tilkynning þess efnis að maður hefði veist að ungri konu við skemmtistaðinn Fróns á Selfossi. Til orðaskipta hafði komið milli þeirra fyrir utan skemmtistaðinn. Konan lýsti manninum sem 180 sentímetra háum með snoðklippt hár. Maðurinn var enskumælandi og taldi hún líklegt að hann væri pólskur. Lögreglan á Suðurlandi biður þá sem geta veitt upplýsingar um þetta atvik að hafa samband í síma 444 2000 eða í tölvupósti á sudurland@logreglan.is.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira