Elena Skorobogatova er með íslenskan ríkisborgararétt Jakob Bjarnar skrifar 10. október 2016 11:40 Inga Guðrún var þreytt þegar hún sendi út listann, sá hann varla á skjánum og því fóru þessir minnispunktar út fyrir misgáning. En Gústaf leiðir listann.
Íslenska Þjóðfylkingin, E-listinn, hefur fullmannað lista sinn í Reykjavíkurkjördæmi norður. Í fyrsta sæti listans situr sagnfræðingurinn Gústaf Níelsson. Annað sæti listans skipar Inga Guðrún Halldórsdóttir, félagsliði. Hún sendi listann út til fjölmiðla í gærkvöldi en fyrir mistök var sendur út listi þar sem athugasemd var gerð við nafn Elenu Skorobogatova íþróttakennara sem skipar 18. sæti á lista: „Ath ríkisborgararétt“. Ýmsir á samfélagsmiðlum hafa verið að reyna að ráða í þessi torkennilegu skilaboð en Inga Guðrún segir þetta mistök. „Þetta er eitthvað sem ég hafði punktað hjá mér. Þetta var svo seint í gærkvöldi, ég var eitthvað svo þreytt að ég gleymdi að hreinsa þetta út. Þetta voru bara minnispunktar fyrir mig. Sem ég hafði sett til hliðar. Vorum að klára að setja upp listann á fundi í gær, það var eitthvað verið að spyrja út í þetta, en auðvitað er allt á hreinu með ríkisborgararétt Elenu.“Ýmsir reyna að ráða í hvað lesa megi í þessi skilaboð frá Íslensku þjóðfylkingunni.Inga Guðrún segir að hún sé mjög ánægð með listann en hún var þreytt eftir fundinn og sá illa á skjalið. „Þetta er kjánalegt, ég hélt að þetta væri allt svo flott og tilbúið hjá mér.“ Hún segir að á lista séu nokkrar erlendar konur og þetta sé flottur hópur. „Við viljum endilega að útlendingar séu með í stjórnmálum á Íslandi. Að þeirra rödd heyrist líka.“En, nú vilja margir ætla að ykkur sé í nöp við útlendinga, séuð útlendingahatarar? „Neineinei, við viljum bara að þetta fólk aðlagist íslensku samfélagi. Viljum ekki að landamærin séu galopin, við megum ekki vera einhverjir kjánar. Það eru alltaf einhverjir sem vilja misnota aðstöðuna. Við verðum að velja þau sjálf sem við viljum fá hingað til landsins. Við getum ekki fengið heiminn yfir okkur. Það er þöggunaráróður sem er í gangi, að fólk megi ekki segja sína skoðun án þess að vera úthrópað sem rasistar. Stimplunarárátta. Við viljum bara byrgja brunninn áður en barnið dettur ofan í það.“
Tengdar fréttir Þjóðfylkingin kynnir fullskipaðan lista í Reykjavík norður Gústaf Níelsson leiðir listann 9. október 2016 23:03 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent Fleiri fréttir „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar Sjá meira
Þjóðfylkingin kynnir fullskipaðan lista í Reykjavík norður Gústaf Níelsson leiðir listann 9. október 2016 23:03