Spurði hvort ríkisstjórnin beiti sér fyrir auknum ójöfnuði Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 10. október 2016 16:32 Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Vísir/Ernir „
Vill ekki formaður Sjálfstæðisflokksins vera hreinskilinn og segja einfaldlega að þetta sé stefna flokksins, að hann sé ánægður með þennan árangur, með aukinn ójöfnuð?“ sagði Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag og beindi fyrirspurn sinni til Bjarna Benediktssonar. Bjarni svaraði því til að af orðum Helga að dæma sé Samfylkingin orðin „harðsvíraður vinstri flokkur“. „Menn spyrja: Af hverju segið þið það ekki bara beint út að þið viljið að sumir hafi það betra en aðrir? Ja, ég segi bara á móti: Af hverju segið þið það ekki bara beint út að ef sumum mun ganga eitthvað betur en öðrum sé það ykkar stefna að jafna þann mun aftur með sköttum? Segið þið það bara beint út. Það má enginn hafa það betra en annar. Það er sanngjarnt að þá sé staðan jöfnuð með sköttum. Af hverju segið þið það ekki bara beint út?“ sagði Bjarni. Helgi ítrekaði fyrirspurn sína í kjölfarið og spurði jafnframt hvort Alþingi og ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að auka á ójöfnuð með því að láta þá tekjuhærri fá meira og þá ríkustu hafa stærri hluta af eignunum en alla aðra. Auðlegðarskatturinn hefði til dæmis getað fylgt höftunum og skilað þannig tugum milljarða í sameiginlega sjóði og dregið út auknum ójöfnuði. „Það sem við töldum rétt að gera var einfaldlega það að skattar sem höfðu verið kynntir til sögunnar sem tímabundnir skattar mundu renna sitt skeið. Við töldum það líka rétt að afnema undanþágur fyrir slitabú sem vinstri stjórnin hafði fest í lög. Með því tókum við um 40 milljarða af slitabúum og fjármálafyrirtækjum sem við hækkuðum skattana á,“ sagði Bjarni.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira