Fær miskabætur vegna handtöku og líkamsleitar sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 3. mars 2016 16:57 Dómur var kveðinn upp í Hæstarétti í dag. vísir/gva
Íslenska ríkinu var í Hæstarétti í dag gert að greiða íslenskum karlmanni á fimmtugsaldri 150 þúsund krónur vegna handtöku og líkamsleitar sem hann sætti í tengslum við rannsókn lögreglu á ætluðu fíkniefnabroti hans. Maðurinn hafði farið fram á 1,5 milljónir í miskabætur.Í dómi Hæstaréttar segir að maðurinn hafi verið sviptur frelsi í rúmar fjörutíu mínútur þegar hann var handtekinn í maí 2014. Í aðdraganda handtökunnar sætti hann líkamsleit en í málinu deildu aðilar um hvort líkamsleitin hefði farið fram að fengnu samþykki hans. Málinu lauk án þess að ákæra hafi verið gefin út. Forsaga málsins er sú að aðfaranótt mánudagsins 19. maí 2014 stöðvaði lögregla bifreið á Breiðholtsbraut í Reykjavík. Maðurinn var farþegi í bifreiðinni en grunur lék á að ökumaðurinn hafi verið undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Í stefnunni á hendur íslenska ríkinu segir að lögreglumaðurinn hafi farið niðrandi orðum um manninn og kallað hann „alræmdan kókhaus“. Hafi þá verið leitað á honum á vettvangi og hann meðal annars látinn fara úr buxunum. Ekkert hafi fundist við leitina. Hæstiréttur taldi manninn eiga rétt á miskabótum vegna líkamsleitarinnar og handtökunnar og var íslenska ríkinu því, sem fyrr segir, gert að greiða honum 150 þúsund krónur. Þá var ríkinu jafnframt gert að greiða honum 500 þúsund krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði í júní í fyrra sýknað íslenska ríkið af kröfum hans.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira