Faðir 14 ára drengs ósáttur við Icelandair: „Setja frímerki á rassinn og honum hent inn í næstu vél“ Atli Ísleifsson og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa 4. ágúst 2016 10:14 Drengurinn var með stand-by miða til Denver en breytti miðanum upp á sitt einsdæmi eftir að ljóst var að vélin til Denver væri fullbókuð. Vísir/Vilhelm
Fjölskylda fjórtán ára íslensks drengs er mjög ósátt við Icelandair eftir að starfsfólk flugfélagsins heimilaði drengnum að fljúga til New York þegar hann átti upphaflega að fljúga til Denver, án þess að fá nokkra staðfestingu eða heimild frá foreldrum. Drengurinn var með svokallaðan standby-miða til Denver, þar sem hann býr ásamt foreldrum sínum, en með slíkum miðum kemst maður með vélinni, sé á annað borð laust sæti, en móðir hans vinnur í fluggeiranum. Þegar upp var staðið reynist hins vegar vélin til Denver full og ákveður drengurinn upp á sitt einsdæmi að fara með annarri vél til New York, þar sem systir hans, amma og afi búa. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir að haft hafi verið samband við fjölskyldumeðlim áður en drengurinn fór um borð í vélina til New York, nánar um það hér.Heldur að litli bróðir sé að fíflastHenry Ragnarsson, faðir drengsins, kveðst mjög óánægður með að drengurinn hafi komist upp með að komast í vélina til New York án samþykkis foreldranna. „Það hafði enginn samband við mig. Þetta á ekki að vera hægt. “ Henry segist hafa komist að því að barnið væri á leiðinni til New York þegar fjölskyldan fær tölvupóst frá Icelandair, tíu mínútum fyrir brottför, um að miðanum til Denver hafi verið breytt og gildi nú til New York. „Drengurinn var þá búinn að hringja til systur sinnar [sem býr í New York] og segir „Við sjáumst á eftir, ég er að koma til New York.“ Hún heldur auðvitað að hann sé að grínast, að þetta sé bara litli bróðir að fíflast. Hann fer óáreittur í gegnum allt heila klabbið. Icelandair sendir hann af stað án þess að hafa hugmynd um að það sé nokkur maður í New York að fara að sækja hann,“ segir Henry.Beðinn um að hringja aftur á morgunHenry segir að eftir að hann hafi fengið tölvupóstinn um að miðanum hafi verið breytt hafi hann hringt í ofvæni til Íslands. „Ég tala þar við einhvern hjá Icelandair sem segist eitthvað hafa heyrt af þessu. Hann segist ætla að kanna málið og hringja aftur eftir smástund. Hann hringdi aldrei til baka. Ég hringi svo aftur í Icelandair um klukkutíma síðar og næ þar í aðra manneskju. Hún segist vera nýkomin á næturvakt og ekkert vita um málið. Ég spyr þá hvort Icelandair ætli þá að láta drenginn labba einan út úr flugstöðinni í New York. Fulltrúi Icelandair segist þá halda að stöðvarstjórinn í New York sé kominn í málið. Ég spyr þá af hverju enginn hafi hringt í okkur, foreldra drengsins, til þess að láta okkur vita. Ég fæ engin svör við því og er beðinn um að hringja aftur á morgun.“Engin fylgd í New YorkHenry segir að amma stráksins, sem býr í New York, hafi þá hringt í stöðvarstjórann í New York til að spyrja hvað sé eiginlega á seyði. „Þar segist stöðvarstjórinn hafa fengið skilaboð frá Icelandair um að það sé strákur um borð í vélinni til New York sem hafi átt að fara til Denver og að hún hafi verið beðin um að taka á móti honum. Allt í lagi með það, við bíðum í fimm og hálfan tíma eftir að flugvélin lendi. Ég fæ svo símtal frá stráknum þegar hann er lentur þar sem hann er kominn í gegnum landamæraeftirlitið og er að bíða eftir töskunni sinni. Engin manneskja er hins vegar sjáanleg í kringum hann [til að fylgjast með honum].“ Henry segir að stöðvarstjórinn í New York hafi svo haft samband við sig og greint frá því að taska drengsins hafi orðið eftir í Keflavík, þar sem hann hafi innritað sig sem farþega á leið til Denver, en síðar farið um borð í vél til New York.Frímerki á rassinn og hent í næstu vélHenry segist mjög óánægður með Icelandair í þessu máli. „Þarna er strákurinn, fjórtán ára pjakkur, að taka einhverja ákvörðun af því að vélin til Denver er full og hann langar til þess að heimsækja ömmu sína í New York. Það er svo bara tekið gott og gilt. Menn setja frímerki á rassinn og honum hent inn í næstu vél án þess að töskurnar fari með. Það segir manni að þetta hafi ekki farið í gegnum rétt ferli. Þeir hafa til að mynda enga staðfestingu á því að barnið sé til dæmis ekki að flýja að heiman. Hann gæti verið að flýja land, hvað vita þeir,“ spyr Henry. Hann segir að vinnureglur hjá öllum flugfélögum séu voðalega einfaldar. „Ef þú kemur inn á svona standby-miða og það er ekki pláss fyrir þig, þá ferðu heim. Það er hægt að skipta um áfangastað en það er heil mikið vesen. Það er ferli sem þarf að fara í gegnum. Hann var ekki með neitt skriflegt frá foreldrum sínum um að hann mætti skipta um áfangastað. Þeir reyna að hringja í mig og mömmu stráksins, ná ekki sambandi, en hann er samt sendur af stað án þess að vita hvort nokkur tæki á móti honum í New York.“Uppfært klukkan 14:40 Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að haft hafi verið samband við afa drengsins til að ganga úr skugga um að hann mætti ferðast til New York. Ýmislegt geti komið upp þegar ferðast sé á Stand by miða.„Algengt er þess vegna að farþegar á stand-by geri breytingar á plönum sínum á síðustu stundu, eins og hér var gert.“ Nánar er rætt við Guðjón í fréttinni hér að neðan.
Tengdar fréttir Icelandair um mál 14 ára drengsins: Gengu úr skugga um að samband væri haft við fjölskyldumeðlimi Upplýsingafulltrúi Icelandair segir að um leiðan misskilning sé að ræða. 4. ágúst 2016 13:09 Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Fleiri fréttir Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í fyrsta sinn frá kosningum Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Sjá meira
Icelandair um mál 14 ára drengsins: Gengu úr skugga um að samband væri haft við fjölskyldumeðlimi Upplýsingafulltrúi Icelandair segir að um leiðan misskilning sé að ræða. 4. ágúst 2016 13:09