Handtekinn tvisvar sinnum fyrir heimilisofbeldi á einu kvöldi Samúel Karl Ólason skrifar 14. október 2016 07:31 Vísir/Getty
Lögreglan handtók mann tvisvar sinnum fyrir heimilisofbeldi í austurborginni í gær. Í seinna skiptið hafði lögreglan afskipti af manninum skömmu fyrir klukkan níu í gærkvöldi, en þá hafði hann verið laus í rúma klukkustund eftir að hafa verið handtekinn fyrir heimilisofbeldi fyrr um daginn. Þá voru tveir menn til viðbótar handteknir fyrir heimilisofbeldi í gærkvöldi og í nótt samkvæmt dagbók lögreglu. Lögreglu barst tilkynning um þjófnað í söluturni í austurborginni á sjöunda tímanum í gær. Þjófurinn komst undan og segir lögreglan málið í rannsókn. Auk þess var maður handtekinn á lokuðu athafnasvæði Eimskipa við Sundahöfn. Minnst fjórir ökumenn voru stöðvaðir í gær grunaðir um akstur undir áhrifum. Þá reyndist einn þeirra eftirlýstur. Ökumaður slasaðist þegar hann missti stjórn á bíl sínum á Hringbraut á móts við Þjóðminjasafnið laust fyrir klukkan þrjú í nótt, og hafnaði á steinvegg. Ökumaður , sem var einn í bílnum, sat fastur í bílflakinu og kviknaði eldur út frá vélinni, en snarráðir vegfarendur náðu að slökkva hann áður en ökumanninn sakaði. Slökkviliðið kom svo á vettvang og beitti klippum til að ná honum úr flakinu og var hann fluttur í sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans.
Mest lesið RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Erlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Innlent Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Erlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Innlent Fleiri fréttir RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Sjá meira