Byggðu tveggja milljóna króna göngubrú í Kórnum sem Timberlake notaði einu sinni áður en hún var rifin Birgir Olgeirsson skrifar 22. október 2016 08:40 Justin Timberlake á tónleikum í Kórnum. Vísir/Andri
Byggja þurfti göngubrú fyrir tvær milljónir króna í Kórnum svo Justin Timberlake gæti farið á svið og til baka á öruggan hátt. Bandaríski tónlistarmaðurinn notaði þessa göngubrú aðeins einu sinni, en hún var rifin eftir tónleikana árið 2014. Þetta kemur fram í máli Ísleifs Þórhallssonar, tónleika- og viðburðahaldara hjá Senu, í BS-ritgerð Kristjáns Jens Rúnarssonar sem nefnist Stækkun Laugardalsvallar en þar er reynt að svara því hvort það sé skynsamlegt fyrir Reykjavíkurborg að taka þátt í hugsanlegum breytingum á þjóðarleikvanginum.Ísleifur Þórhallsson í Kórnum.Vísir/VilhelmVöllurinn of opinn fyrir vindi Í ritgerðinni er farið yfir rökin fyrir stækkun Laugardalsvallar en Ísleifur bendir á að ein helsta ástæða þess að ekki séu haldnir stórtónleikar á Laugardalsvelli sé sú að völlurinn sé of opinn og hættan á of sterkum vindi sé of mikil til að unnt sé að taka þá áhættu. Hann segist aðspurður myndi fagna nýjum leikvangi með tilliti til tónleikahalds. Sena hafi nú þegar látið sér koma það til hugar að halda þar stórtónleika en það hafi ekki verið gert þar sem ekki hafi náðst samningar við listamenn að koma í þeim glugga sem til boða stendur að halda útitónleika á Íslandi. Sena hefur látið framkvæma fyrir sig veðurfarsskýrslu fyrir Laugardalsvöll og þar komi fram að hagstæðasti tíminn til tónleikahalds sé frá byrjun júní mánaðar til loka ágúst. Á öðrum tímum sé veðurfar of óstöðugt til að hægt sé að halda útitónleika. Reiknað er með að Laugardalsvöllur myndi taka á bilinu tuttugu til þrjátíu þúsund manns á tónleika eins og hann er núna og telur Ísleifur það nokkuð langsótt að ná að landa þannig stjörnur til að selja svo mikið af miðum akkúrat á því tímabili þar sem er óhætt að halda útitónleika á Íslandi.„Svo er það bara rifið“ Þegar umræðan beinist að Kórnum og hvernig Sena hefur nýtt það íþróttahús fyrir stórtónleika með stórstjörnum á borð við Justin Timberlake og síðar Justin Bieber, en þessari BS-ritgerð var skilað inn fyrir apríl á þessu ári, nefnir Ísleifur að það sem sé alltaf erfitt við tónleikahald á Íslandi að menn þurfi ávallt að byrja frá grunni.„Við þurftum að byggja göngubrú í Kórnum svo að Timberlake gæti labbað einu sinni back stage og yfir og til baka og það kostaði tvær milljónir.“Vísir/Andri„Þú veist, þú kemur bara að einhverju húsi og það er íþróttahús og þú verður að breyta því í tónleikastað og það er svo gríðarlegur kostnaður sem því fylgir og af því að það gerist svo sjaldan, það eru svo sjaldan haldnir tíu þúsund manna tónleikar og ennþá sjaldnar haldnir þú veist átján þúsund manna tónleikar þá náttúrulega er ekkert til staðar þegar þú kemur,“ segir Ísleifur og nefnir göngubrúna máli sínu til stuðnings. „Þú veist, við þurftum að byggja göngubrú í Kórnum svo að Timberlake gæti labbað einu sinni back stage og yfir og til baka og það kostaði tvær milljónir. Og svo er það bara rifið. En það er engin önnur leið til að koma honum yfir á öruggan hátt þeir samþykkja ekkert annað en þú veist, hérna alvöru gang og hann þarf að vera traustur og það má enginn sjá hann og það þarf að vera gæsla. Það þurfti að fara yfir hérna brunaútganga og það þurfti að vera samþykktur að öllum stofnunum á Íslandi og allt þetta kjaftæði. Og það hérna er bara engin önnur leið til að koma honum frá back stage og yfir þannig að við þurftum bara að byggja brú sem kostaði tvær milljónir sem var notuð einu sinni til að labba yfir og til baka.“ Hann segir að tónleikahald á þessari stærðargráðu væri mun auðveldara en til væri aðstaða sem væri hönnuð með slíkt í huga.Reykjavík selji KSÍ völlinn Niðurstaða BS-ritgerðarinnar er sú að þótt vissulega sé þörf fyrir fjölgun áhorfendasæta á Laugardalsvelli, þá liggur það ekki fyrir að sé hagkvæmt og skynsamlegt fyrir Reykjavíkurborgar að taka þátt í slíkum breytingum sem eigandi vallarins. Það er mat Kristjáns Jens að að Reykjavíkurborg ætti þess í stað að skoða að selja Knattspyrnusambandi Íslands völlinn, sem síðan myndi finna einkaaðila með sér í breytingarnar. „Þar með myndu fjárhagslegar skuldbindingar Reykjavíkurborgar gagnvart Laugardalsvelli hverfa og hægt væri að nýta þá fjármuni sem sparast annars staðar í borginni.“Lesa ritgerðina í heild hér.
Tengdar fréttir Nýtt útlit þjóðarleikvangsins Í tillögum Yrkis arkitekta, sem kynntar voru í borgarráði í síðustu viku, er sýnt nýtt útlit Laugardalsvallar. Á teikningunum er gert ráð fyrir að völlurinn rúmi 25.600 áhorfendur auk hótels og skóla meðal annars. 21. september 2016 07:00 Mest lesið Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira
Nýtt útlit þjóðarleikvangsins Í tillögum Yrkis arkitekta, sem kynntar voru í borgarráði í síðustu viku, er sýnt nýtt útlit Laugardalsvallar. Á teikningunum er gert ráð fyrir að völlurinn rúmi 25.600 áhorfendur auk hótels og skóla meðal annars. 21. september 2016 07:00