Borgin greiddi yfir hundrað milljónir í ferðakostnað Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 30. september 2016 07:00 Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri. vísir/stefán
Starfsmenn og kjörnir fulltrúar Reykjavíkurborgar ferðuðust erlendis fyrir 21,4 milljónir króna á árinu 2015. Sé ferðakostnaður allra fyrirtækja borgarinnar og sviða hennar lagður saman nemur hann 121,3 milljónum króna. Á fundi borgarráðs í gær var lagt fram yfirlit yfir heildarkostnað borgarinnar vegna utanlandsferða. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fór í níu ferðir á árinu 2015 sem kostaði borgina rúmar 2,6 milljónir króna. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er eini borgarfulltrúinn sem ferðaðist fyrir meira en milljón. Sigurður Björn Blöndal, borgarfulltrúi Bjartrar framtíðar og formaður borgarráðs, fór fyrir tæpa milljón og Jóna Björg Sætran, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina, ferðaðist fyrir um 870 þúsund. Alls ferðuðust kjörnir fulltrúar fyrir 12 milljónir króna. Náms- og kynnisferð borgarfulltrúa til Alberta í Kanada var langdýrasta ferðin því þau Marta Guðjónsdóttir og Kjartan Magnússon, borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, Jóna Björg Sætran og Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, fengu öll 591 þúsund fyrir þessa einu ferð. Alls kostaði ferðin borgina um þrjár milljónir króna.Ofurkostnaður Orkuveitunnar Heildarkostnaður embættismanna nam 9,2 milljónum króna. Þar sker Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, sig úr en hún ferðaðist fyrir 2,2 milljónir króna. Óskar Jörgen Sandholt, skrifstofustjóri þjónustu og reksturs, fór utan fyrir tæpar tvær milljónir og Hrólfur Jónsson, skrifstofustjóri eigna og atvinnuþróunar, ferðaðist fyrir 1,3 milljónir. Yfirlit yfir kostnað fyrirtækja og sviða innan borgarinnar var einnig lagt fram og var heildarkostnaðurinn um 100 milljónir. Þar sker Orkuveitan sig úr og ferðuðust starfsmenn hennar fyrir 50 milljónir króna. Umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar ferðaðist fyrir um 9,4 milljónir og skrifstofa þjónustu og reksturs fyrir 5,7 milljónir króna.Hér má sjá sundurliðaðan kostnað á hvern fulltrúa, starfsmann og fyrirtæki.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fleiri fréttir Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Sjá meira