Sýknudómur yfir konu vegna kynferðisbrots ómerktur Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 13. október 2016 16:41 Héraðsdómur Suðurlands taldi sannað að hún hefði haft munnmök við konuna en var sýknuð á þeim grundvelli að hana hefði skort ásetning til að fremja kynferðisbrot gegn henni. Vísir/GVA
Hæstiréttur ómerkti í dag sýknudóm héraðsdóms yfir konu sem grunuð var um kynferðisbrot gegn annarri konu í ágúst 2014. Dómurinn taldi verulega annmarka á meðferð málsins í héraði og var málinu vísað aftur þangað til löglegrar meðferðar. Konan var ákærð fyrir að hafa haft munnmök við aðra konu sem ekki gat spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga. Héraðsdómur Suðurlands taldi sannað að hún hefði haft munnmök við konuna en var sýknuð á þeim grundvelli að hana hefði skort ásetning til að fremja kynferðisbrot gegn henni. Brotaþoli sagðist hafa vaknað um morguninn við það að hin konan væri að sleikja á sér kynfæri, en fram kemur í dómnum að konurnar hefðu kynnst í lok árs 2012 og að þær hefðu átt í kynferðislegu sambandi um nokkurra mánaða skeið. Konan sem var ákærð sagðist í skýrslutöku lögreglu hafa vaknað með höfuðið á milli fóta vinkonu sinnar. Hún hefði þá reist sig upp í sjokki, hissa á hvað hefði gerst og að hin konan hefði sett fætur sína saman og snúið sér að veggnum. „Ákærða kvaðst hafa grafið höfuð sitt í koddann og sagt mörgum sinnum sorrý, sorrý og afsakið,“ segir í dómnum. Hún breytti framburði sínum fyrir dómi og þegar hún var beðin um útskýringar á því sagðist hún hafa verið að lýsa því hvað það þýddi að fara niður á, en hún hafi ekki verið að viðurkenna að hún hefði sleikt kynfæri hinnar konunnar. Héraðsdómur Suðurlands taldi framburð brotaþola trúverðugan, meðal annars í ljósi þess að þrír vinir hennar studdu framburðinn, en þeir sögðu konuna hafa verið miður sín eftir að brotið var á henni. Þá kom fram í skýrslu sálfræðings að einkenni áfallstreituröskunar konunnar megi rekja til hins ætlaða kynferðisbrots. „Ekkert liggur hins vegar fyrir um það í máli þessu að ölvunarástand brotaþola hafi verið með þeim hætti að hún hafi ekki getað spornað við kynferðismökunum af þeim sökum, enda hefur hún sagt að hún hafi aðeins drukkið nokkra bjóra,“ segir í niðurstöðu héraðsdóms. Hæstiréttur sá hins vegar verulega annmarka á meðferð málsins í héraði. Meðal annars liggi fyrir í gögnum málsins að ákærða hefði áður vakið hina konuna á áþekkan hátt og að þær hefðu látið sér það vel líka.Dóm Hæstaréttar má lesa hér.
Mest lesið Eyjólfur færir klukkuna aftur Innlent Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Innlent „Margir staðir og margir sakborningar“ Innlent Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum Innlent Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Innlent Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Erlent Noem rekin Erlent Rannsakar geimveður fyrir Bandaríkjaher Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Eyjólfur færir klukkuna aftur Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum „Margir staðir og margir sakborningar“ Rannsakar geimveður fyrir Bandaríkjaher „Er ekki alltaf gerlegt við þessar kringumstæður“ Viðreisn opinberar listann í Kópavogi Tveir í varðhaldi vegna hópárásar í miðbæ Plóma mjólkar mest allra kúa og setti Íslandsmet Þessi leiða Viðreisn í Garðabæ Kynnir hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður við ESB fer fram Þau skipa lista Viðreisnar í Reykjavík Ráðist var á ungmenni í strætóskýli Íslendingar á flótta, nýr listi og fegrunaraðgerðir karla Óþolandi tafir vegna ágreinings við landeigendur heyri sögunni til Bein útsending: Kynna lista Viðreisnar borginni „Enginn meira hrelldur en ég þegar rödd Eiríks hljómaði á línunni“ Dómur barnaníðingsins Brynjars staðfestur Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Hættur við lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Breiðu bökin verði skattlögð svo forsendur kjarasamninga standist Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Ákvarðanir teknar af heift en ekki skynsemi Andstæðingum borgarlínu hafi verið bolað af lista Fjórir handteknir eftir alvarlega líkamsárás „Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ ASÍ segir niðurskurðaraðgerðir ekki koma til greina Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Sjá meira