Gæti orðið stærsti vinnustaður landsins innan tveggja ára Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 12. október 2016 18:18 Keflavíkurflugvöllur. vísir/anton brink.
Keflavíkurflugvöllur verður stærsti vinnustaður landsins innan tveggja ára ef spár ganga eftir. Farþegum kemur til með að fjölga hratt næstu árin og er gert ráð fyrir að þeir verði orðnir 20 milljónir árið 2040 og að þar starfi 16 þúsund manns. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Isavia, sem rekur Keflavíkurflugvöll, birti í dag. Farþegum um Keflavíkurflugvöll hefur fjölgað hratt síðustu árin. Fyrir um þrjátíu árum fóru um 500.000 manns um flugvöllinn á ári. Á þessu ári eru farþegarnir þegar orðnir fleiri en fimm milljónir. Isavia gerir ráð fyrir að farþegum haldi áfram að fjölga hratt og verði orðnir um tuttugu milljónir árið 2040. Búist er við að nærri helmingur þeirra verði skiptifarþegar. Það eru farþegar sem millilenda á Íslandi en flestir eru þeir að fara á milli Norður-Ameríku og Evrópu. Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia, segir fjölmörg tækifæri flesta í þessu. Sá möguleiki sé til staðaðr að Keflavíkurflugvöllur geti orðið samgöngumiðstöð á milli heimsálfa. Þá er fjallað um það í skýrslunni hversu hratt störfum á flugvellinum hefur fjölgað síðustu ár. Í dag starfa um sex þúsund manns á flugvellinum. „Þá erum við að tala um bara flugfélögin, flugvirkjar, flugmenn, flugumferðarstjórar, flugafgreiðslumenn, starfsmenn í verslun og veitingum og þess háttar,“ segir Elín. Gert er ráð fyrir að Keflavíkurflugvöllur verði orðinn stærsti vinnustaður landsins árið 2018 ef farþegaspáin rætist. Þá starfi þar um sjö þúsund og fimm hundruð manns. Störfunum heldur svo áfram að fjölga. „Í lok spátímabilsins sem við erum að tala um þá erum við að tala um að þetta verði um 16 þúsund störf sem að flugvöllurinn er að búa til,“ segir Elín.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Önnur lægð nálgast landið Veður Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fleiri fréttir Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Sjá meira