Telur Íslending hafa bitið af sér eyrað í Berlín Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. september 2016 23:47 Þýska lögreglan segir að um Norðmann að ræða. Vísir/Getty
Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri er sagður hafa bitið hluta af eyra af þýskum manni í lest á leið milli Berlínar og Neuen í Þýskalandi. Íslendingurinn er sagður hafa veist að sessunaut mannsins með ókvæðisorðum. Þýska lögreglan segir þó að árásarmaðurinn sé norskur ferðamaður. Í frétt Bild er rætt við fórnarlambið sem segir að Íslendingur hafi ráðist á sig. Samkvæmt frétt Berliner Zeitung er Íslendingurinn sagður hafa reynt að espa farþega lestarinnar upp á móti sessinaut fórnarlambsins. Hafi Íslendingurinn verið drukkinn í lestinni og kallað að mannium orð á borð við „Bin Laden“, „Allahu Akbar“, og „Settu sprengjuna í gang.“ Við það hafi fórnarlambið ákveðið að stíga inn í atburðarrásina og koma sessinaut sínum til bjargar. Íslendingnum hafi þó mislíkað það. Réðst hann á manninn og beit hluta af eyra hans af áður en hann öskraði á ensku: „Ég drep þig.“ Við það hafi farþegar áttað sig á alvarleika málsins og kallað til lögreglu. Var árásarmaðurinn handtekinn en þjóðerni hans virðist þó vera á reiki. Í frétt Associated Press um málið kemur fram að árásarmaðurinn hafi verið norskur ferðamaður og er það haft eftir lögreglunni í Berlín. Norska blaðið Aftenposten heldur því einnig fram að um norskan ferðamann hafi verið að ræða. Situr árásarmaðurinn nú í gæsluvarðhaldi og bíður hann dóms.
Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Innlent Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Innlent Lögreglan leitar enn að Ernu Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Vilja að konur uppfylli sinn æðsta tilgang: að verða mæður Innlent Fleiri fréttir Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Til marks um tíma þegar fólk vildi gefa eitthvað til baka Hiti á fyrsta fundi: „Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki“ Aldrei upplifað annan eins hita í Lundúnum Nú mega yngri en 25 ára ekki leigja golfbíl Fluttur á sjúkrahús eftir að hafa ekið á kyrrstæðan bíl úti í vegkanti Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Skattamál: „Sumir kalla það hækkun, aðrir kalla það að hætta að fá afslátt“ Nóróveira í ostrum Fær ekki lögbundna þjónustu og óvissa um framtíð listaverks Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Lögreglan leitar enn að Ernu „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Kölluð út vegna aflvana báts við Hellisey Segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Tæplega tveggja ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Þessi 24 vilja taka við bæjarstjórastólnum af Magnúsi Skráðum félögum í Nýju Avalon fjölgaði um 575 prósent Telja ríkið vera að brjóta samkomulag um börn með fjölþættan vanda Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut „Við stöndum öll með starfsemi Samhjálpar“ Óvissa með kaffistofu Samhjálpar og listaverk Gerðar í hættu Konum sem beita heimilisofbeldi fjölgar Kosti um tvo milljarða að laga verstu gangstéttirnar í borginni Hyggjast stórbæta aðstöðu ferðamanna við Hvítserk „Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Þurfi að finna Kaffistofunni nýjan og góðan stað Jarðskjálftar í grennd við Húsafell en enginn órói „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Sjá meira