Skilmálar eldsneytisútboðs gengu gegn stefnu N1 um þjónustu Svavar Hávarðsson skrifar 8. janúar 2016 07:00 Eggert Þór Kristófersson
Ástæða þess að olíufélagið N1 tók ekki þátt í útboði Landssambands smábátaeigenda (LS) og Sjávarkaupa í árslok með verulegt magn eldsneytis var sú að skilmálar útboðsins um viðskipti við hluta smábátasjómanna samræmdust ekki stefnu fyrirtækisins. Eggert Þór Kristófersson, forstjóri N1, skýrir málið í svari við skriflegri fyrirspurn Fréttablaðsins, sem barst ekki í tíma fyrir birtingu á umfjöllun blaðsins í gær. Þar sagði frá tveimur útboðum, sem Sjávarkaup annaðist, á um 27.000 tonnum af eldsneyti til töluverðs fjölda smærri útgerða og smábátasjómanna. Olís tók ekki þátt í útboðunum, en Skeljungur tryggði sér viðskiptin í báðum tilfellum. N1 sat hjá í útboði LS. Eggert skrifar: „N1 heldur úti víðtækri þjónustu við mikinn fjölda smábátasjómanna um land allt. Stefna N1 í þessum viðskiptum hefur verið að bjóða smábátasjómönnum afsláttarkjör sem taka mið af umfangi viðskipta og aðstæðum hvers og eins viðskiptavinar, s.s. mismunandi dreifingarkostnaði og umsetningu í hverri höfn. Það var mat N1 að skilmálar umrædds útboðs um viðskipti hluta smábátasjómanna, þar sem m.a. var ekki tekið tillit til umfangs og aðstæðna hvers og eins viðskiptavinar og jafnframt kveðið á um greiðslu þóknunar til þriðja aðila fyrir milligöngu viðskipta, samræmdust ekki þessari stefnu félagsins.“ Hann bætir við að N1 „mun eftir sem áður kappkosta að bjóða viðskiptavinum sínum í hópi smábátasjómanna samkeppnishæf og sanngjörn viðskiptakjör, að teknu tilliti til raunkostnaðar við innkaup og dreifingu eldsneytis hverju sinni.“
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira